Nýr loftslagssamningur samþykktur

Loftslagsráðstefnan COP26 | 13. nóvember 2021

Nýr loftslagssamningur samþykktur

Allir leiðtogar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna samþykktu nú fyrir stundu nýjan loftslagssamning á COP26 loftslagsráðstefnunni í Glasgow.

Nýr loftslagssamningur samþykktur

Loftslagsráðstefnan COP26 | 13. nóvember 2021

Samkomulag náðist í Glasgow fyrir stundu.
Samkomulag náðist í Glasgow fyrir stundu. AFP

Allir leiðtogar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna samþykktu nú fyrir stundu nýjan loftslagssamning á COP26 loftslagsráðstefnunni í Glasgow.

Allir leiðtogar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna samþykktu nú fyrir stundu nýjan loftslagssamning á COP26 loftslagsráðstefnunni í Glasgow.

Er þetta fyrsti loftslagssamningurinn þar sem skýrt er kveðið á um að draga úr kolanotkun. Orðalagið var hins vegar tónað niður að kröfu Indlands og Kína á lokametrunum og breytt úr því að kolanotkun yrði hætt í áföngum í að dregið yrði úr henni. Margir urðu fyrir vonbrigðum með þessa breytingu en hún var samþykkt til að vernda önnur mikilvæg ákvæði.

Vísindamenn vilja meina að þær aðgerðir sem voru samþykktar dugi skammt til að sporna við hlýnun jarðar. En ákveðið var að markmiðið væri að halda hlýnun jarðar undir 1,5 til 2 gráður, líkt og Parísarsáttmálinn kveður á um.

Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segist sáttur við að samkomulag hafi náðst en þetta sé hins vegar ekki nóg. „Við erum enn á barmi stórslyss í loftslagsmálum,“ sagði hann eftir að samningurinn var samþykktur.

Alok Sharma, forseti COP26 var tárvotur um augun þegar þegar niðurstaðan var ljós og baðst afsökunar því hvernig málin hefðu þróast.

mbl.is