Íslendingar varaðir við ferðalögum

Kórónuveiran Covid-19 | 27. nóvember 2021

Íslendingar varaðir við ferðalögum

Vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar í Suður-Afríku og greiningar afbrigðisins í löndum utan Afríku í kjölfar ferðalaga ræður sóttvarnalæknir íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn Covid-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu.

Íslendingar varaðir við ferðalögum

Kórónuveiran Covid-19 | 27. nóvember 2021

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar í Suður-Afríku og greiningar afbrigðisins í löndum utan Afríku í kjölfar ferðalaga ræður sóttvarnalæknir íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn Covid-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu.

Vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar í Suður-Afríku og greiningar afbrigðisins í löndum utan Afríku í kjölfar ferðalaga ræður sóttvarnalæknir íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn Covid-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu.

Ísland fylgir ferðatakmörkunum á ESB/Schengen-svæðis. Vakin er athygli á því í tilkynningu að mælt hefur verið með að flug frá ákveðnum löndum fái ekki að koma til Evrópu vegna útbreiðslu nýja afbrigðisins.

Mögulegt er að fleiri lönd bætist á listann eftir því sem upplýsingar berast um frekari útbreiðslu.

Löndin sem flug verða ekki heimil frá eru:

Botsvana

Esvatíní

Lesótó

Mósambík

Namibía

Suður-Afríka

Zimbabwe

Gæti að sóttvörnum og fari í sýnatöku

Bólusettir einstaklingar sem hafa komið dvalið í þessum löndum lengur en sólarhring undanfarna 14 daga eru hvattir til að gæta vel að sóttvörnum og fara í sýnatöku til PCR-greiningar fimm dögum eftir komuna til landsins þótt þeir hafi farið í sýnatöku innan tveggja daga eftir komu.

Bólusettir einstaklingar sem koma hér eftir til landsins frá þessum löndum eru hvattir til að fara í PCR-sýnatöku við komu, fylgja reglum um sóttkví og endurtaka sýnatöku eftir fimm daga.

mbl.is