„Ég heyri ekki annað en að allir séu mjög ánægðir með að fá Willum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir þegar hann er spurður hvernig honum lítist á nýjan yfirmann sinn; Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Þórólfur segist þó eiga eftir að sakna Svandísar Svavarsdóttur úr heilbrigðisráðuneytinu.

Willum tók í morgun við lyklunum að ráðuneyti sínu úr höndum Svandísar Svavarsdóttur, fráfarandi heilbrigðisráðherra.
Willum sagði við það tækifæri að verkefnin væru mörg og eitt þeirra væri að ræða við Þórólf.
Svandís Svavarsdóttir sagði við tilefnið að hún gengi sátt frá störfum sem heilbrigðisráðherra undanfarin fjögur ár. Heimsfaraldurinn bæri auðvitað hæst en þó væri hún ánægðust með heilbrigðisstefnu sína, sem fékk víðtækan stuðning í þinginu þvert á flokka.
Þórólfur segir að samstarf hans og Svandísar hafi verið með miklum ágætum og það hafi verið ánægjulegt að vinna með henni.
„Auðvitað sakna ég hennar en það er bara eins og það er, það kemur maður í manns staða og mér líst mjög vel á Willum.“