Varhugavert að láta stuðningsaðgerðir fjara út

Kórónuveiran Covid-19 | 1. desember 2021

Varhugavert að láta stuðningsaðgerðir fjara út

Á sama tíma og sóttvarnarlæknir segir að grípa þurfi mögulega til frekari ferða- og samkomutakmarkana vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar er gert ráð fyrir því í frumvarpi til fjárlaga að flestar stuðningsaðgerðir fyrir fyrirtæki fjari út um áramótin.

Varhugavert að láta stuðningsaðgerðir fjara út

Kórónuveiran Covid-19 | 1. desember 2021

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Ljósmynd/Aðsend

Á sama tíma og sóttvarnarlæknir segir að grípa þurfi mögulega til frekari ferða- og samkomutakmarkana vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar er gert ráð fyrir því í frumvarpi til fjárlaga að flestar stuðningsaðgerðir fyrir fyrirtæki fjari út um áramótin.

Á sama tíma og sóttvarnarlæknir segir að grípa þurfi mögulega til frekari ferða- og samkomutakmarkana vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar er gert ráð fyrir því í frumvarpi til fjárlaga að flestar stuðningsaðgerðir fyrir fyrirtæki fjari út um áramótin.

Þetta þykir Félagi atvinnurekenda varhugavert, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Óvissa um framhaldið áfram mikil

Í tilkynningunni segir að FA hafi sent fjármálaráðherra erindi í lok október og bent á að þótt atvinnulífið hefði náð sér á strik með afléttingu samkomutakmarkana og minnkandi hömlum á landamærunum sýndi þróun faraldursins, jafnt hér á landi og á heimsvísu, að óvissa um framhaldið væri áfram mikil.

Sumstaðar í nágranna- og markaðslöndum Íslands hefðu samkomutakmarkanir verið hertar á ný og áfram mætti búast við truflunum á ferðalögum. Markaðir ýmissa fyrirtækja, jafnt í þjónustu- og vöruútflutningi, færu því áfram í óvissu. Þá benti FA á að ýmis stuðningsúrræði, sem hefðu reynst fyrirtækjum vel, myndu bráðlega renna sitt skeið og nefndi eftirfarandi dæmi:

Lagaákvæði um stuðning við fyrirtæki vegna launagreiðslna til starfsmanna í sóttkví taka til launagreiðslna sem inntar eru af hendi til og með 31. desember 2021.

Reglugerðarákvæði um átakið Hefjum störf, þar sem fyrirtæki geta ráðið starfsfólk með styrk frá Vinnumálastofnun, falla úr gildi um áramót.

Viðspyrnustyrkir giltu út nóvember.

Frestun gjalddaga staðgreiðslu launa og staðgreiðslu tryggingagjalds gildir eingöngu út árið.

Löggjöfin alltaf nokkrum skrefum á eftir

Í fjárlagafrumvarpinu er ekki gert ráð fyrir endurnýjun á lagaákvæðum um ýmis mikilvæg úrræði. Í greinargerð frumvarpsins segir: „Dregið verður úr tímabundnum mótvægisráðstöfunum tengdum kórónuveirufaraldrinum en í samræmi við dvínandi áhrif hans á efnahagsumsvif og forsendur fjármálaáætlunar fjara flestar ráðstafanir út í lok árs 2021 að frátöldu fjárfestingarátaki.“ Þó er boðað að niðurfelling gistináttaskatts sé framlengd um ár til viðbótar.

„Nú þegar við blasir að stjórnvöld kunna enn á ný að setja reglur, sem setja hömlur á starfsemi fyrirtækja og takmarka tekjumöguleika þeirra, telur FA að halda þurfi því opnu með framlengingu lagaákvæða eða nýrri löggjöf að fyrirtæki geti áfram þurft á stuðningi að halda vegna þróunar faraldursins, til dæmis vegna tekjufalls í tiltekinn tíma af völdum faraldursins og sóttvarnaaðgerða stjórnvalda,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, ástæðu til þess að halda stuðningsúrræðunum áfram opnum þó það væri best ef fyrirtækin þurftu ekki á þeim að halda.

í ljósi þeirrar óvissu sem áfram er um þróun faraldursins er skynsamlegt að búa þannig um hnúta að hægt sé að bregðast við áföllum með sveigjanlegum hætti, í stað þess að löggjafinn sé alltaf nokkrum skrefum á eftir.“ 

mbl.is