Ef það er einhver borg sem kemur manni í jólaskap þá er það New York og það veit veitingamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson eða Simmi Vill eins og hann er kallaður. Simmi sem jafnaði sig á kórónuveirunni í síðasta mánuði flaug út í vikunni.

„Geggjaður dagur í stóra eplinu,“ skrifaði Simmi ánægður á Instagram eftir góðan og viðburðaríkan dag. Simmi deildi ferðalaginu með fylgjendum sínum og virtist skemmta sér mjög vel. Hann fór á Starbucks og gekk með heitan drykk um götur borgarinnar. Hann skellti sér á hestvagn í Central Park. Hann fór svo á safnið sem enginn sem heimsækir New York má láta fram hjá sér fara, American Museum of Natural History.
Jólatréð fræga við Rockefeller Center var lýst upp í gær, 1. desember. Simmi lagði þó ekki í margmennið og ákvað frekar að fara í búðir. Eins og sannur áhrifavaldur kom hann heim á hótel með poka frá Gucci en hann keypti strigaskó frá ítalska hátískumerkinu.