Ekki vísindasiðanefndar að dæma í máli Kára

Kórónuveiran Covid-19 | 4. desember 2021

„Það er miður að það sé ekki skilningur á því að þetta sé rétta niðurstaðan að okkar mati samkvæmt skilgreindum lögum,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, í samtali við mbl.is um viðbrögð Kára Stefánssonar, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, við úrskurði stofnunarinnar þess efn­is að fyr­ir­tækið hafi með þjón­ustu við heil­brigðis­yf­ir­völd í heimsfaraldrinum framið glæp.

Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það er miður að það sé ekki skilningur á því að þetta sé rétta niðurstaðan að okkar mati samkvæmt skilgreindum lögum,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, í samtali við mbl.is um viðbrögð Kára Stefánssonar, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, við úrskurði stofnunarinnar þess efn­is að fyr­ir­tækið hafi með þjón­ustu við heil­brigðis­yf­ir­völd í heimsfaraldrinum framið glæp.

„Það er miður að það sé ekki skilningur á því að þetta sé rétta niðurstaðan að okkar mati samkvæmt skilgreindum lögum,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, í samtali við mbl.is um viðbrögð Kára Stefánssonar, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, við úrskurði stofnunarinnar þess efn­is að fyr­ir­tækið hafi með þjón­ustu við heil­brigðis­yf­ir­völd í heimsfaraldrinum framið glæp.

„Niðurstaðan er hjá okkur og ef fólk unir henni ekki þá er það bara næsta skref,“ segir Helga en málið snýr í meg­in­drátt­um að því að sótt­varna­lækn­ir tók þá ákvörðun í sam­ráði við Íslenska erfðagrein­ingu að kanna hversu stór hundraðshluti lands­manna hefði myndað mót­efni við veirunni.

Skoðað var þá mót­efni í blóði þeirra sem höfðu smit­ast og sýkst al­var­lega og því voru tek­in sýni úr ein­stak­ling­um sem lágu sýkt­ir inni á Land­spít­ala. Var þetta gert til þess að skilja stöðu far­ald­urs­ins í land­inu svo hægt væri að sníða aðgerðir eft­ir vexti.

Per­sónu­vernd hef­ur kom­ist að þeirri niður­stöðu að sýn­in hafi á eng­an hátt tengst sótt­varn­ar­átaki og þar með hafi fyr­ir­tækið brotið gegn per­sónu­vernd­ar­lög­um.

Ekki hægt að kæra niðurstöðuna til ráðuneytis

Spurð út í ummæli Kára um að það sé ekki Per­sónu­vernd­ar að úr­sk­urða málið held­ur vís­indasiðanefnd­ar, segir Helga það ekki rétt. 

„Þetta snýst ekki um það, við erum ekki að fara inn á valdsvið vísindasiðanefndar. Það er valdsvið siðanefndarinnar að ákvarða hvort um sé að ræða vísindarannsókn eða ekki en hvernig persónuupplýsingar eru unnar í þessu umhverfi er mat Persónuverndar samkvæmt núgildandi lögum.“

Helga nefnir að Persónuvernd er sjálfstæð stofnun og því sé ekki hægt að kæra ákvörðunina til ráðuneytis heldur þurfi að höfða mál en Kári hefur sagt að Íslensk erfðagreining muni gera það.

„Fyrirtækið hefur fullan rétt á að sækja málið fyrir dómstólum ef það telur þess þurfa,“ segir Helga. 

mbl.is