114 flóttamenn sem bjargað var á Miðjarðarhafinu um borð í leitar- og björgunarskipið Ocean Viking hinn 16. desember fengu síðdegis í gær leyfi til að koma í land í Trapani á Sikiley. Fólkið hefur hafst við á skipinu í rúma viku en í hópnum eru fjögur börn, þar af tveir nýburar og er sá yngri rétt tæplega þriggja vikna.

Brynja Dögg Friðriksdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins og upplýsingafulltrúi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) um borð í skipinu, tók þátt í björguninni í síðustu viku.
Í samtali við mbl.is segir hún bæði flóttafólkinu og áhöfninni hafa verið mjög létt og að mikil gleði hafi gripið um sig þegar leyfið kom frá yfirvöldum í Trapani, en skipið lagði þar að bryggju um klukkan ellefu í morgun.
Að loknu Covid-prófi þar sem allir reyndust neikvæðir, bæði flóttafólk og áhöfn, fékk fólkið að fara í land og segir Brynja Dögg mörg tár hafa verið á hvarmi. En ítalski Rauði krossinn tók vel á móti fólkinu á bryggjunni.
Flestir í hópnum eru frá Erítreu en fólkið fór frá Líbíu í opnum og yfirfullum gúmmíbát. Um er að ræða mikla hættuför sem enginn leggur í nema í algjörri neyð, að sögn Brynju Daggar.
Á þessu ári hafa 1.508 einstaklingar farist á hafsvæðinu á milli Líbíu og Ítalíu, en bátarnir eru mjög vanbúnir fyrir sjóferðir af þessu tagi.