Hamingjusöm að hafa getað gert gagn

Áhugavert fólk | 31. desember 2021

Hamingjusöm að hafa getað gert gagn

Rúna Sif Rafnsdóttir er 35 ára gömul þriggja barna móðir sem býr á Tálknafirði. Fyrr á þessu ári ákvað hún að gefa hluta af lifrinni úr sér til þess að bjarga lífi sonar vinkonu sinnar sem var vart hugað líf. Að mati lesenda Smartlands er Rúna Sif kona ársins. 

Hamingjusöm að hafa getað gert gagn

Áhugavert fólk | 31. desember 2021

Rúna Sif Rafnsdóttir.
Rúna Sif Rafnsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rúna Sif Rafnsdóttir er 35 ára gömul þriggja barna móðir sem býr á Tálknafirði. Fyrr á þessu ári ákvað hún að gefa hluta af lifrinni úr sér til þess að bjarga lífi sonar vinkonu sinnar sem var vart hugað líf. Að mati lesenda Smartlands er Rúna Sif kona ársins. 

Rúna Sif Rafnsdóttir er 35 ára gömul þriggja barna móðir sem býr á Tálknafirði. Fyrr á þessu ári ákvað hún að gefa hluta af lifrinni úr sér til þess að bjarga lífi sonar vinkonu sinnar sem var vart hugað líf. Að mati lesenda Smartlands er Rúna Sif kona ársins. 

Ef það er einhver sem á skilið að vera valin kona ársins þá er það Rúna Sif sem tók flugið frá Bíldudal til þess að bjarga mannslífi. Eldur Elí er níu mánaða drengur sem þurfti nýja lifur til að geta lifað af. Eldur Elí er sonur Bjarka Páls Eysteinssonar og Kristínar Gunnarsdóttur, sem eru vinir Rúnu Sifjar og eiginmanns hennar, Jónatans Guðbrandssonar. Síðasta sumar kom í ljós að ef Eldur Elí fengi ekki líffæragjöf myndi hann ekki lifa það af. Þá var hann búinn að vera veikur í marga mánuði. Hann var lagður inn á spítala vegna lifrarbólgu sem hann fékk af völdum veirusýkingar. Það gerði það að verkum að hann var með skerta lifrarstarfsemi sem getur verið mjög hættulegt.

Hvernig varð þér við þegar þú fékkst fréttirnar að þú værir kona ársins að mati lesenda Smartlands?

„Mér finnst þetta mjög óraunverulegt og stórt. Mér finnst það merkilegt og ekki eitthvað sem ég hafði velt fyrir mér þegar þetta magnaða og óvænta ferðalag hófst. Það að sjá nafn sitt mikið til umræðu undanfarið hér og þar, að fá þennan mikla heiður frá ykkur að vera kosin kona ársins og fá allar þessar fallegu kveðjur frá fólki sem ég þekki og þekki ekki, er mikið og stórt. En þessi saga er líka stór og falleg. Það sem ég gerði var svo stórt og ég skil að fólk sjái það. Þarna var lítið barn í neyð og þurfti hjálp til að halda lífinu. Ég finn ekki orðin yfir hversu þakklát ég er hvernig þetta fór og að ég hafi getað hjálpað,“ segir Rúna Sif og er hálfklökk þegar við hittumst. Hún rekur söguna af því hvernig það hafi komið til að hún gaf hluta af sinni eigin lifur til þess að bjarga lífi Elds Elís.

Jónatan Guðbrandsson og Rúna Sif Rafnsdóttir ásamt sonum sínum þremur; …
Jónatan Guðbrandsson og Rúna Sif Rafnsdóttir ásamt sonum sínum þremur; Jökli Rafni, Grétari Elí og Guðbrandi Elí. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vildi geta hjálpað

„Þegar ég heyrði fyrst af því að foreldrarnir væru að athuga hvort þau gætu gefið honum líffæri úr sér þá flaug það strax í gegnum huga minn að kannski gæti ég gert það ef þau gætu það ekki,“ segir Rúna Sif og bætir við:

„Lea Sif Valsdóttir vinkona okkar býr í Stokkhólmi í Svíþjóð. Hún hafði farið í frí til Gautaborgar með fjölskyldu sinni þar sem þau hittu Kristínu sem var með eldri börnin sín, en Bjarki komst ekki, því hann sat hjá Eldi Elí, sem var kominn í einangrun og ástandið mjög slæmt.

Það var einmitt í þessari ferð sem Lea gerði sér grein fyrir hversu heilsu Elds Elís hafði hrakað hratt og mikið, svo mjög að ekki þyrfti að spyrja að leikslokum, ef engin lifur væri í boði. Það mætti engan tíma missa. Á þessum tímapunkti var vitað að foreldrar hans pössuðu ekki sem líffæragjafar fyrir hann, svo Lea vildi láta kanna hvort hún væri líklegur gjafi.

Stuttu seinna fór Lea með lest eldsnemma frá Stokkhólmi aftur til Gautaborgar í tékk. Ég hafði verið á næturvakt svo ég var vakandi þegar hún var á ferðalaginu og við töluðum svo lengi og hún upplýsti mig um allt sem hún vissi. Bæði áður en hún fór og eftir. Þennan laugardag sendi ég póst í sameiginlegt spjall í vinkonuhópinn okkar og spurði Kristínu hvort við gætum ekki líka farið í tékk hér á Íslandi, þá tóku fleiri undir það í hópnum. Það vildu allir gera sitt.

Síðar þennan laugardag kom í ljós að Lea passaði ekki. Þá sendi ég skilaboð beint á Kristínu vinkonu að ég vildi láta athuga mig. Þetta kom frá mínum dýpstu hjartarótum og ég fann að ég vildi gera þetta. Ég fann strax hvað Kristín og Bjarki voru þakklát. Á mánudeginum voru fleiri búnir að fara í tékk og ég var orðin óþolinmóð og fór að hringja sjálf á Landspítalann. Ég hafði svo sterka tilfinningu að ég þyrfti að fara í þetta tékk,“ segir Rúna Sif.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ertu svona næm? Finnur þú hluti á þér?

„Nei, ég held ekki, en þarna kom mjög sterk tilfinning, maðurinn minn er hins vegar mjög næmur og hann var með sömu tilfinningu og ég fyrir þessu og við ræddum það. Við vorum allan tímann bæði með sterka tilfinningu, eins og það væri einhver að hvísla í eyrað á okkur og segja að þetta færi vel og að ég þyrfti að fara í þetta tékk. Við höfum reyndar nokkra í Sumarlandinu grunaða og þá einna helst Brynjar bróður Kristínar sem kvaddi síðastliðið vor, langt fyrir aldur fram vegna veikinda, þegar Eldur Elí var aðeins eins mánaðar gamall. Þessi tilfinning var svo sterk og ómetanleg og varð til þess að við vorum samstiga allan tímann og litum aldrei um öxl,“ segir hún og ég veitti því athygli að bros færist yfir andlitið þegar hún talar um eiginmann sinn. Það er augljóst að þau eru saman í þessu.

Hvernig brást Kristín vinkona þín við?

„Vinkona mín átti ekki orð. Foreldrar mega ekki af siðferðilegum ástæðum biðja fólk um líffæri fyrir börnin sín, sem gerir stöðuna aðeins erfiðari. Ég sagði við þau að ég væri tilbúin í þetta. Á sunnudeginum fékk ég svo símtalið frá Svíþjóð að ég væri komin á listann um líffæragjöf og var spurð allskonar spurninga. Ég var reyndar sjálf búin að spyrja mig þessara sömu spurninga í huganum, en þá hafði ég áhyggjur af því að ég væri ekki í nógu góðu formi og sagðist vera tveimur kílóum léttari en ég var, en bara af því að ég hafði svo sterka tilfinningu að ég yrði að komast í þetta tékk og þeir vildu fyrst kanna litlar og nettar konur, því þær væru líklegri að passa fyrir Eld Elí sem var svo lítill,“ segir hún og brosir en þá fór af stað atburðarás sem ekki var hægt að sjá fyrir.

Á mánudeginum lagði Rúna Sif af stað frá Tálknafirði og yfir á Bíldudal, en þegar hún var um það bil að leggja af stað sagði Jónatan, eiginmaður hennar, að hún ætti að taka vegabréfið með.

„Jónatan sagði við mig að ég yrði að taka vegabréf okkar beggja með og að hann kæmi með mér til Svíþjóðar ef þetta gengi upp. Þarna sást vel hvað hann er næmur. Hann vissi að þetta myndi ganga upp. Ég flaug frá Bíldudal þennan mánudagsmorgun og fór beint í tékk í Reykjavík.“

Jökull Rafn, Grétar Elí og Guðbrandur Elí.
Jökull Rafn, Grétar Elí og Guðbrandur Elí. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ástfangin í 12 ár

Rúna Sif og Jónatan eiga þrjá syni en fyrir átti hann tvö börn af fyrra sambandi. Það er ekki hægt að tala við Rúnu Sif nema spyrja hana um það hvort hún hafi aldrei verið óttaslegin. Hvort hún hafi aldrei leitt hugann að því að hún gæti kannski dáið sjálf í þessari ferð frá sínum eigin börnum og fjölskyldu.

„Nei, ég hugaði aldrei á þá leið. Ég er það líkamlega hraust að ég var aldrei hrædd um að heilsan myndi svíkja mig. Ég var meira að hugsa um hvað ég myndi vilja að annað fólk gerði fyrir mig í þessari stöðu. Mér fannst þau búin að ganga í gegnum allt of mikið og hreinlega komið nóg. Mér var líka bent á það í þessu ferli að ég gæti ekki gefið mínum eigin börnum lifur ef ég væri búin að gefa öðrum en það truflaði mig ekki,“ segir hún og bendir á að þó að hennar líffæri passaði fyrir Eld Elí var það ekki merki um að hennar lifur hefði hentað hennar eigin börnum.

Varstu aldrei hrædd um að hann myndi ekki lifa af, að líkami hans hefði getað hafnað líffæragjöfinni?

„Ég var í rauninni búin að fara í gegnum þessar hugsanir þegar Lea var á leiðinni í tékk „ef líffærið myndi ekki virka hvernig myndi sá sem gæfi það þá bregðast við“. Ég man þegar við Eydís systir Bjarka sátum fyrir utan Landspítalann báðar búnar að fara í tékk, haldandi í vonina að önnur okkar myndi passa, þá held ég að ég hafi náð að létta af mér og sagði við Eydísi og Hildigunni vinkonu mína að sá sem færi í þessa ferð þyrfti að muna það að hvernig sem færi þá væri það ekki honum að kenna ef þetta gengi ekki upp. Ég held að ég hafi sagt þetta upphátt við þær til að friða einhverja innri hræðslu. Þegar ég vissi svo að ég væri líklegur líffæragjafi var ég sannfærð um að þetta myndi ganga upp. Það var ekkert annað í boði, því annars myndi hann deyja,“ segir Rúna Sif.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjaldan verið hressari

Það hlýtur að vera mikið álag fyrir líkamann að láta skera af lifrinni og fara í sjö tíma skurðaðgerð. Hvernig ertu búin að hafa það síðan þú fórst í aðgerðina?

„Í dag eru komnir fjórir mánuðir síðan ég fór í aðgerðina en hún fór fram 26. ágúst. Ég finn í rauninni ekki neitt eins og staðan er núna. Nema þá bara eins og harðsperrur, því ég er alltaf að gera aðeins meira eftir því sem tíminn líður og ég jafna mig meira. Ég var í Svíþjóð í 10 daga og ég var frá vinnu í níu vikur og ég er afar þakklát fyrir skilning frá vinnuveitanda bæði hjá mér og Jónatan og líka frá öllum kennurunum mínum í skólanum á Ísafirði, því ég byrjaði önnina svo seint. Ég er líka svo heppin með allt fólkið mitt og vini sem gerðu þetta allt auðveldara. Ég fór í sjö tíma aðgerð og er afar stolt af fallega örinu mínu sem nær frá bringubeini niður að nafla, en ég er með tvö falleg ör sem eru eftir strákana mína. Tvíburastrákarnir okkar Jónatans komu með keisaraskurði og bera báðir Elí-nafnið sem millinafn líkt og Eldur Elí, ég kýs því kalla þau Elí-örin mín. En um leið og ég vaknaði úr svæfingunni fann ég að ég myndi ná mér að fullu. Ég jafnaði mig fljótt á keisaranum, ég hef líka gengið í gegnum fæðingu án þess að fá verkjalyf, ætli ég sé ekki bara með ágætis sársaukaþröskuld,“ segir hún.

Miklu meiri tími á Tálknafirði

Rúna Sif og Jónatan hafa búið á Tálknafirði í þrjú ár. Hann fékk starf sem aðstoðaryfirlögregluþjónn og ákvað að grípa tækifærið. Fjölskyldan bjó áður í Njarðvík en Rúna Sif er þó úr Reykjavík og mikið borgarbarn.

„Hann Jónatan er mikill grínisti. Við vorum nýlega búin að byggja okkur hús í Njarðvík þegar hann kom heim og spurði hvort ég væri tíl í að flytja á Vestfirði með honum. Ég hélt að sjálfsögðu að hann væri að grínast. Hann náði þó að selja mér þessa hugmynd og rökstuddi mál sitt með því að segja að hann yrði meira heima. Áður vann hann langa vinnudaga. Hann benti á að ég hefði meiri tíma til að læra og við fjölskyldan fengjum meiri tíma saman. Við gætum alltaf gert okkur ferðir suður til að hitta fólkið okkar. Ég fékk meira að segja að ákveða hvort það væri Patreksfjörður eða Tálknafjörður og ég valdi þann síðari þar sem yndislega mágkona mín og fjölskylda hennar búa. Við Jónatan störfum bæði á Patreksfirði en ætlum samt að halda okkur hér á Tálknafirði. Það er alger draumur fyrir börnin okkar að alast upp á svona stað. Þetta reyndist rétta skrefið fyrir okkur, því við höfum mun meiri tíma með börnunum okkar og eyðum litlum tíma í bílferðir, nema þá þegar við förum í borgina. Ég finn í rauninni ekki fyrir því að við séum einangruð. Við komum reglulega í bæinn og gerum þá það sem okkur finnst skemmtilegt eins og hitta fjölskyldu og vini okkar, fara í leikhús og bíó og fleira í þeim dúr. Þegar við komum í bæinn skipuleggjum við tímann vel og reynum að nýta hann sem best. Það að hafa flutt svona lagt í burtu er alveg stórt skref en systir mín og fleiri hafa þó haft orð á því að ég sé með mjög góða aðlögunarhæfni,“ segir hún og hlær.

Ást í löggunni

Rúna Sif og Jónatan byrjuðu saman fyrir tólf árum. Þau störfuðu bæði sem lögregluþjónar en kynntust þó ekki í vinnunni heldur í gegnum sameiginlega vini. Þau eru ástfangin og ánægð með tilveruna. Þegar ég spyr hana hvort hún hafi vitað það strax að hann yrði maðurinn hennar segir hún svo vera.

„Hann er svo ótrúlega tryggur og nærvera hans er svo góð. Hann er réttsýnn, sem mér finnst skipta miklu máli. Ég segi alltaf að það sé hann sem geri líf mitt betra,“ segir Rúna Sif og segir að það hafi verið ákveðin tækifæri í því að flytja á Tálknafjörð. Hún skráði sig til dæmis í nám en fyrir jólin útskrifaðist hún sem stúdent og sjúkraliði.

„Ég veit að mín hilla er heilbrigðisgeirinn og mig langar að verða ljósmóðir. Ég byrjaði hins vegar á því að klára sjúkraliðanám og útskrifaðist úr því fyrir jólin. Ég vildi vera fullviss um að þetta væri mín rétta hilla, sem ég veit núna. Ég stefni á að fara í hjúkrunarfræðina þegar ég er tilbúin, nema að kerfið taki breytingum og heimili að sjúkraliðar fari beint í ljósmæðranámið, þá geri ég það klárlega.“ segir Rúna.

Hún hætti í löggunni 2010 þegar hún varð ólétt að frumburði sínum. Starf lögreglunnar er krefjandi og oft sér þessi stétt hlið á mannlífinu sem hinn venjulegi borgari sér ekki. Telur þú að árin þín sem lögreglumaður hafi mótað lífsviðhorf þitt og gert það að verkum að þú varst tilbúin til að bjarga lífi barns?

„Lögregluárin mótuðu mig klárlega að einhverju leyti og ég á margar góðar minningar úr starfinu og úr lögregluskólanum. Ég eignaðist marga góða vini þar og kunningja. Því miður fóru þau plön ekki eins og ég hafði hugsað mér. Mér fannst, og finnst enn í dag, lögregluskólakerfið á þeim tíma hafa brugðist mér. Ég var sár, en það er önnur saga. Ég ber mikla virðingu fyrir lögreglunni og hennar störfum og hef alltaf gert. Þetta er erfitt og krefjandi starf, sem hefði hentað mér vel, en ætli örlög mín hafi ekki að einhverju leyti gripið í taumana og ætlað mér annað. Ég er í dag stoltur heilbrigðisstarfsmaður og fæ mikið út úr því að hjálpa öðrum. Það er gefandi og því fylgir mikil ábyrgð.“

Nú er nýtt ár fram undan. Hvernig verður 2022? Ertu með plön um að gefa úr þér fleiri líffæri?

„Ég er jákvæð manneskja að eðlisfari og trúi því alltaf að öll ár verði góð, líka árið 2022. Vona samt að það verði rólegra, að ég muni eiga góða tíma með vinum og fjölskyldu. Við Jónatan höfum til dæmis verið að gæla við að hafa síðbúið brúðkaupspartí hérna fyrir vestan næsta sumar, en við giftum okkur hjá sýslumanni 17.11.17. Ég ætla líka að trúa því að þetta Covid fari að fjara út. En af því að þú spurðir hvort ég væri með plön um að gefa fleiri líffæri á næsta ári, þá vona ég ekki. Reyndar er ein sem er að vinna með mér sem er bara með eitt nýra. Ég sagði við hana að hún vissi af mér ef hún lenti í veseni,“ segir Rúna Sif og hlær.

mbl.is