Tryllt stuð á Tenerife um áramótin

Tenerife | 3. janúar 2022

Tryllt stuð á Tenerife um áramótin

Fjölmargir Íslendingar skruppu í sólina til Tenerife um jól og áramót. Á meðal þeirra sem voru á Tenerife um áramótin voru ráðherra, prófessor í líftölfræði og einn þekktasti fasteignasali landsins. 

Tryllt stuð á Tenerife um áramótin

Tenerife | 3. janúar 2022

Ásgeir Kolbeinsson fagnaði nýju ári á Tenerife ásamt fjölskyldu og …
Ásgeir Kolbeinsson fagnaði nýju ári á Tenerife ásamt fjölskyldu og vinum. Skjáskot/Instagram

Fjölmargir Íslendingar skruppu í sólina til Tenerife um jól og áramót. Á meðal þeirra sem voru á Tenerife um áramótin voru ráðherra, prófessor í líftölfræði og einn þekktasti fasteignasali landsins. 

Fjölmargir Íslendingar skruppu í sólina til Tenerife um jól og áramót. Á meðal þeirra sem voru á Tenerife um áramótin voru ráðherra, prófessor í líftölfræði og einn þekktasti fasteignasali landsins. 

Guðlaugur Þór Þórðarson, um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðherra, var í leyfi frá störfum en hann var staddur á Teneri­fe um áramótin. Guðlaugur fagnaði nýja árinu ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Johnson, eiganda Hreyfingar.

Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir sleikti sólina með fjölskyldunni yfir jól og áramót.

Einkaþjálfarinn Egill Einarsson og sambýliskona hans, Guðríður Jónsdóttir, fóru til Tenerife með börnum og vinum sínum. Á meðal vinafólksins var athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson og sambýliskona hans Bryndís Hera Gísladóttir. Stjörnufasteignasalinn Hannes Steindórsson sást einnig njóta á eyjunni grænu. 

Athafnakonan Marín Manda Magnús­dótt­ir og sam­býl­ismaður henn­ar Hann­es Frí­mann Hrólfs­son, fram­kvæmda­stjóri Kviku eign­a­stýr­ing­ar, voru ásamt börnum sínum á Tenerife.

Björk Eiðsdóttir blaðamaður á Fréttablaðinu og Karl Ægir Karlsson, doktor í svefnrannsóknum, fögnuðu nýju ári í sólinni og það gerði líka Thor Aspelund prófessor í líftölfræði ásamt eiginkonu sinni, Örnu Guðmundsdóttur. Á Tenerife var einnig Anna Þóra Björnsdóttir, uppistandari og gleraugnasali, ásamt eiginmanni sínum, Gylfa Björnssyni. 



mbl.is