Reykur stígur upp af hrauninu í Nátthaga

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 4. janúar 2022

Athygli hefur vakið í dag hvernig hvítur reykur stígur upp frá hraunbreiðunni í Fagradalsfjalli, þar sem hún steypist ofan í Nátthaga við suðurenda fjallsins.

Skjáskot úr vefmyndavél mbl.is sýnir reykinn fyrr í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni eru þó engin merki um að ný kvika sé tekin að streyma upp á yfirborðið.

Hér að neðan má sjá streymi einnar af vefmyndavélum mbl.is, en henni hefur nú verið beint ofan í Nátthaga.

Ekki endilega raunin

„Á svona köldum dögum þá sést öll gufa miklu betur, þannig að það virkar eins og það sé eitthvað að gerast þegar það er ekki endilega raunin,“ segir náttúruvárfræðingur á vakt hjá Veðurstofunni.

Frost hefur mælst á bilinu 4-5,5 gráður í veðurathugunarstöðinni á Fagradalsfjalli í dag.

mbl.is