Munur á aflatölum þegar eftirlit er með veiði

Eftirlit með veiðum | 7. janúar 2022

Munur á aflatölum þegar eftirlit er með veiði

Fiskistofa segir gögn sýna ótvírætt að meðafli dragnóta- og botnvörðuveiða sé mun meiri þegar veiðarnar sæta eftirliti stofnunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Munur á aflatölum þegar eftirlit er með veiði

Eftirlit með veiðum | 7. janúar 2022

Gögn Fiskistofu eru sögð sýna töluverðan mun á meðafla eftir …
Gögn Fiskistofu eru sögð sýna töluverðan mun á meðafla eftir því hvort veiðar voru undir eftirliti eða ekki. mbl.is/Sigurður Bogi

Fiskistofa segir gögn sýna ótvírætt að meðafli dragnóta- og botnvörðuveiða sé mun meiri þegar veiðarnar sæta eftirliti stofnunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Fiskistofa segir gögn sýna ótvírætt að meðafli dragnóta- og botnvörðuveiða sé mun meiri þegar veiðarnar sæta eftirliti stofnunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Stofnunin hefur tekið saman gögn um aflasamsetningu skipa sem veiða með botnvörpu og dragnót og voru undir eftirliti Fiskistofu 2021 og hefur birt þau á vef sínum.

Fram koma tölur um samsetningu afla hvers skips fyrir sig annars vegar í veiðiferðum sem farnar voru áður en eftirlitsmaður fór með, meðan eftirlitsmaður Fiskistofu var um borð og svo í veiðiferðum sem farnar voru eftir að eftirlitsmaður hafði verið um borð.

Gögnin sýna mjög skýrt að munur er á magni meðafla í veiðiferðum eftir því hvort eftirlitsmaður er um borð eða ekki.,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is