Segjast hafa náð tökum á ástandinu

Óeirðir í Kasakstan | 7. janúar 2022

Segjast hafa náð tökum á ástandinu

Kassym-Jomart Tokayev, forseti Kasakstan, segir að búið sé að mestu að ná tökum á ástandinu sem hefur ríkt í landinu undanfarna daga.

Segjast hafa náð tökum á ástandinu

Óeirðir í Kasakstan | 7. janúar 2022

Kassym-Jomart Tokayev.
Kassym-Jomart Tokayev. AFP

Kassym-Jomart Tokayev, forseti Kasakstan, segir að búið sé að mestu að ná tökum á ástandinu sem hefur ríkt í landinu undanfarna daga.

Kassym-Jomart Tokayev, forseti Kasakstan, segir að búið sé að mestu að ná tökum á ástandinu sem hefur ríkt í landinu undanfarna daga.

Innanríkisráðuneytið segir að öryggissveitir hafi veitt öllum héruðum landsins „aukna vernd“ og að 26 „vopnaðir glæpamenn“ hafi verið drepnir og 18 særst í mótmælunum.

„Löggæslan hefur lagt hart að sér,“ bætti Tokayev við.

Átök á milli öryggissveita og mótmælenda.
Átök á milli öryggissveita og mótmælenda. AFP

Hann staðfesti að friðargæslulið frá Samvinnu- og öryggisbandalagi fyrrum sovétlýðvelda (CSTO) sem Rússar hafa yfirumsjón með, sé komið til Kasakstan.

Bandarísk stjórnvöld vöruðu Rússa í gær við því að nota hersveitir sínar til að ná stjórn á helstu stofnunum Kasakstan og sögðu að heimurinn myndi fylgjast vel með gangi mála.

„Bandaríkin og heimurinn satt best að segja mun fylgjast með því hvort brotið verði á  mannréttindum,“ sagði Ned Price, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins.

mbl.is