Gilda aðrar reglur um þá sem fengu Janssen?

Bólusetningar við Covid-19 | 11. janúar 2022

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um hvort staðið hafi til að gera greinarmun á framkvæmd sóttkvíar bólusettra eftir því hvaða bóluefni viðkomandi hafi fengið. Þá spyr hann hvaða gögn eða aðrar upplýsingar hafi legið til grundvallar slíku mati.

Samkvæmt orðalagi reglugerðar virðast þeir sem upphaflega voru bólusettir með …
Samkvæmt orðalagi reglugerðar virðast þeir sem upphaflega voru bólusettir með Janssen og þegið hafa einn örvunarskammt, þó ekki falla undir rýmkun á reglum um sóttkví. AFP

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um hvort staðið hafi til að gera greinarmun á framkvæmd sóttkvíar bólusettra eftir því hvaða bóluefni viðkomandi hafi fengið. Þá spyr hann hvaða gögn eða aðrar upplýsingar hafi legið til grundvallar slíku mati.

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um hvort staðið hafi til að gera greinarmun á framkvæmd sóttkvíar bólusettra eftir því hvaða bóluefni viðkomandi hafi fengið. Þá spyr hann hvaða gögn eða aðrar upplýsingar hafi legið til grundvallar slíku mati.

Greint hefur verið frá því að þeir sem hafa verið bólusettir með þremur skömmtum af bóluefni, a.m.k. hálfum mánuði fyrir berskjöldun gagnvart smiti vegna Covid-19, sæti ekki sömu takmörkunum í sóttkví samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra, að því er fram kemur á vef umboðsmanns. 

„Samkvæmt orðalagi reglugerðar sem sett var 7. janúar virðast þeir sem upphaflega voru bólusettir með Janssen, sem fer fram með einum skammti bóluefnis í stað tveggja, og þegið hafa einn örvunarskammt, þó ekki falla undir rýmkun á reglum um sóttkví. Með grunnreglur íslensks réttar um jafnræði og meðalhóf í huga og þær kröfur sem gera verður á þeim grundvelli til setningar stjórnvaldsfyrirmæla með heimild í sóttvarnalögum, hefur umboðsmaður óskað eftir ofangreindum upplýsingum fyrir 19. janúar nk. Í kjölfarið verður tekin ákvörðun um hvort tilefni sé til að taka málið til nánari athugunar,“ segir umboðsmaður Alþingis. 

Hér má lesa bréfið. 

mbl.is