Nýr búnaður Freyju gerir verkefnin mun skilvirkari

Landhelgisgæslan | 14. janúar 2022

Nýr búnaður Freyju gerir verkefnin mun skilvirkari

Í vikunni var öldumælisdufli á vegum siglingasviðs Vegagerðarinnar sleppt á Grímseyjarsundi, að þvi er fram kemur í færslu á vef Landhelgisgæslunnar. Þar segir að varðskipið Freyja sé vel búið krönum og við aðgerðina voru brautarkranar og sleppikrumlur krananna notaðar til að koma duflinu og legufærinu fyrir.

Nýr búnaður Freyju gerir verkefnin mun skilvirkari

Landhelgisgæslan | 14. janúar 2022

Hluti áhafnar Freyju með öldumælisduflið. Nýr búnaður varðskipsins þykir góður …
Hluti áhafnar Freyju með öldumælisduflið. Nýr búnaður varðskipsins þykir góður í þessi verkefni enda verða aðgerðir öruggari og einfaldari. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson

Í vikunni var öldumælisdufli á vegum siglingasviðs Vegagerðarinnar sleppt á Grímseyjarsundi, að þvi er fram kemur í færslu á vef Landhelgisgæslunnar. Þar segir að varðskipið Freyja sé vel búið krönum og við aðgerðina voru brautarkranar og sleppikrumlur krananna notaðar til að koma duflinu og legufærinu fyrir.

Í vikunni var öldumælisdufli á vegum siglingasviðs Vegagerðarinnar sleppt á Grímseyjarsundi, að þvi er fram kemur í færslu á vef Landhelgisgæslunnar. Þar segir að varðskipið Freyja sé vel búið krönum og við aðgerðina voru brautarkranar og sleppikrumlur krananna notaðar til að koma duflinu og legufærinu fyrir.

Til að tryggja að duflið færi á nákvæmlega þann stað sem það átti notaði Friðrik Höskuldsson, skipherra, DP-kerfi. „Búnaður Freyju gerir verkefni sem þetta mun skilvirkara og öruggara fyrir áhöfnina,“ segir í færslunni.

Friðrik Höskuldsson, skipherra, notar DP-kerfi skipsins.
Friðrik Höskuldsson, skipherra, notar DP-kerfi skipsins. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson

Freyja hefur einnig annast eftirliti í lögsögunni að undanförnu og var í ferðinni sinnt fjareftirlit haft með fiskiskipum, þar á meðal uppsjávarveiðiskipum norðaustur af Langanesi en skipin voru þar á loðnuveiðum. Vegna fjölda Covid-19 smita í samfélaginu var ekki farið um borð í skipin að þessu sinni.

Varðskipið Freyja lagðist svo að Óskarsbryggju á Siglufirði síðdegis í gær.

Krækt í duflið.
Krækt í duflið. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson
Krækt í legufærið.
Krækt í legufærið. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson
Freyja í höfn á Húsavík.
Freyja í höfn á Húsavík. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson
Fjareftirlit með loðnuveiði.
Fjareftirlit með loðnuveiði. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson
Afturþilfar varðskipsins Freyju.
Afturþilfar varðskipsins Freyju. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson
Freyja fer frá Akureyri.
Freyja fer frá Akureyri. Ljósmynd/Landhelgisgæslan/Guðmundur St. Valdimarsson
mbl.is