Börn á aldrinum 5-11 ára sloppið við innlögn

Kórónuveiran Covid-19 | 17. janúar 2022

Börn á aldrinum 5-11 ára sloppið við innlögn

Hér á landi hafa 3.449 börn á aldrinum 5-11 ára greinst með Covid-19 frá upphafi faraldurs til 2. janúar. Ekkert barn á þeim aldri hefur verið lagt inn á sjúkrahús.

Börn á aldrinum 5-11 ára sloppið við innlögn

Kórónuveiran Covid-19 | 17. janúar 2022

Alls hafa 17 börn á aldrinum 0–16 ára fengið rauða …
Alls hafa 17 börn á aldrinum 0–16 ára fengið rauða merkingu í eftirliti Covid-göngudeildar, sem þýðir mjög alvarleg veikindi sem þarfnast athugunar læknis. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Hér á landi hafa 3.449 börn á aldrinum 5-11 ára greinst með Covid-19 frá upphafi faraldurs til 2. janúar. Ekkert barn á þeim aldri hefur verið lagt inn á sjúkrahús.

Hér á landi hafa 3.449 börn á aldrinum 5-11 ára greinst með Covid-19 frá upphafi faraldurs til 2. janúar. Ekkert barn á þeim aldri hefur verið lagt inn á sjúkrahús.

Þetta kemur fram í svari Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Þar segir enn fremur að alls hafi 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með Covid-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar. Sex börn á þeim aldrei hafi verið lögð inn á sjúkrahús.

Tvö börn á aldrinum 0-16 hafa þurft á gjörgæslustuðningi að halda vegna smits en ekkert á aldrinum 5-11 ára.

Alls hafa 17 börn á aldrinum 0–16 ára fengið rauða merkingu í eftirliti Covid-göngudeildar, sem þýðir mjög alvarleg veikindi sem þarfnast athugunar læknis, þar af fjögur sem voru á aldrinum 5–11 ára. Á sama tíma hafa 308 börn á aldrinum 0–16 ára fengið gula merkingu í eftirliti Covid-göngudeildar sem þýðir versnandi veikindi, þar af 143 sem voru á aldrinum 5–11 ára.

mbl.is