Landspítali fékk aukinn liðstyrk í dag

Kórónuveiran Covid-19 | 17. janúar 2022

Landspítali fékk aukinn liðstyrk í dag

Tvö teymi skipuð svæfingalæknum og hjúkrunarfræðingum á vegum Orkuhússins tóku til starfa á Landspítalanum í dag og munu starfa þar í að minnsta kosti viku.

Landspítali fékk aukinn liðstyrk í dag

Kórónuveiran Covid-19 | 17. janúar 2022

Tvö teymi á vegum Orkuhússins munu koma til með að …
Tvö teymi á vegum Orkuhússins munu koma til með að starfa á Landspítala í sjö daga. Eitt teymi verður til starfa í þrjá daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvö teymi skipuð svæfingalæknum og hjúkrunarfræðingum á vegum Orkuhússins tóku til starfa á Landspítalanum í dag og munu starfa þar í að minnsta kosti viku.

Tvö teymi skipuð svæfingalæknum og hjúkrunarfræðingum á vegum Orkuhússins tóku til starfa á Landspítalanum í dag og munu starfa þar í að minnsta kosti viku.

Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuhússins, segir samvinnuna fara vel af stað en skipulagi um framkvæmd hennar lauk um helgina. 

Greint var frá því á laugardag að Sjúkratryggingar Íslands hefðu samið við Orkuhúsið um að útvega lækna og hjúkrunarfræðinga til starfa á Landspítala. Er þessi liðstyrkur til viðbótar við þann sem Landspítali fær frá starfsfólki hjá Klíníkinni í Ármúla en það hefur þegar hafið störf á spítalanum.

Senda ýmist eitt eða tvö teymi

Mun Landspítali njóta liðsinnis starfsfólks á vegum Orkuhússins næstu tíu daga og verða teymin ýmist tvö eða eitt.

„Þetta er misjafnt eftir dögum. Við erum með tvö teymi í sjö daga og eitt teymi í þrjá daga sem koma til aðstoðar,“ segir Dagný og bætir við að í hverju teymi fyrir sig séu tveir hjúkrunarfræðingar og einn svæfingalæknir. Starfa þau öll í dagvinnu.

„Landspítali metur hvar mest þörfin er. Þau eru bara sett í þau verkefni þar sem brýnasta þörfin er og auðvelt er að færa fólk inn í með skömmum fyrirvara.“

Til skoðunar að framlengja samninginn

Aðspurð segir Dagný til skoðunar hvort lengja megi samninginn frekar en staða Landspítalans sé í stöðugri skoðun.

„Mér skilst á SÍ að þeir séu að tala við fleiri fyrirtæki í heilbrigðisgeiranum og svo er verið að skoða hvort það sé möguleiki á framlengingu.“

mbl.is