Ná ekki að hemja útbreiðslu rétt fyrir leikana

Kórónuveiran Covid-19 | 17. janúar 2022

Ná ekki að hemja útbreiðslu rétt fyrir leikana

Tíðni kórónuveirusmita er á uppleið í Kína hefur ekki verið hærri í næstum tvö ár, eða frá mars 2020. Veldur þetta miklum ugg þar sem einungis þrjár vikur eru í að Vetrarólympíuleikarnir fara fram í Peking.

Ná ekki að hemja útbreiðslu rétt fyrir leikana

Kórónuveiran Covid-19 | 17. janúar 2022

Umfangsmikil skimun hefur verið í Kína á síðustu dögum til …
Umfangsmikil skimun hefur verið í Kína á síðustu dögum til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. AFP

Tíðni kórónuveirusmita er á uppleið í Kína hefur ekki verið hærri í næstum tvö ár, eða frá mars 2020. Veldur þetta miklum ugg þar sem einungis þrjár vikur eru í að Vetrarólympíuleikarnir fara fram í Peking.

Tíðni kórónuveirusmita er á uppleið í Kína hefur ekki verið hærri í næstum tvö ár, eða frá mars 2020. Veldur þetta miklum ugg þar sem einungis þrjár vikur eru í að Vetrarólympíuleikarnir fara fram í Peking.

Strangar samkomutakmarkanir ríkja nú í Kína þar sem markmiðið er að útrýma kórónuveirusmitum. Aðgerðirnar virðast þó ekki hafa borið tilskildan árangur en hópsmit hafa komið upp víða um landið á síðustu vikum og dögum.

Sérfræðingar hafa varað við því að nálgun Kínverja á faraldurinn muni koma til með að hafa neikvæð áhrif á efnahaginn í landinu.

Íþróttamenn og fulltrúar ýmissa ríkja hafa nú þegar lagt land undir fót og eru margir hverjir komnir til Kína þar sem við tekur strangt sóttvarnaeftirlit. Verða keppendur ekki í samneyti við aðra borgara en þeir munu vera í svokallaðri sóttvarnakúlu.

Fyrir flugtak verða íþróttamenn að framvísa neikvæðum niðurstöðum úr Covid-prófi til að komast inn í landið og verða þeir sömuleiðis að gangast undir aðra sýnatöku við komuna í Peking.

mbl.is