Nýtt spálíkan gefur fyrirheit um betri tíð

Kórónuveiran Covid-19 | 19. janúar 2022

Nýtt spálíkan gefur fyrirheit um betri tíð

Nýtt spálíkan Landspítala og Háskóla Íslands um þróun kórónuveirufaraldursins gefur fyrirheit um betri tíð en fyrri líkön, að því er fram kemur á vef Landspítala

Nýtt spálíkan gefur fyrirheit um betri tíð

Kórónuveiran Covid-19 | 19. janúar 2022

Líkanið gefur tilefni til bjartsýni.
Líkanið gefur tilefni til bjartsýni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýtt spálíkan Landspítala og Háskóla Íslands um þróun kórónuveirufaraldursins gefur fyrirheit um betri tíð en fyrri líkön, að því er fram kemur á vef Landspítala

Nýtt spálíkan Landspítala og Háskóla Íslands um þróun kórónuveirufaraldursins gefur fyrirheit um betri tíð en fyrri líkön, að því er fram kemur á vef Landspítala

Greinileg teikn eru á lofti um að Ómíkron-afbrigði veirunnar valdi minni veikindum og leiði til færri gjörgæsluinnlagna“, segir þar. 

Þó er tekið fram að mikilvægt sé að fylgjast með þróuninni næstu daga en smitfjöldi hefur verið á uppleið undanfarið. Segir á vef spítalans að fjöldi daglegra smita í samfélaginu hafi bein áhrif á hversu margir þurfa að leita til spítalans með Covid-smit.

„Það verður verkefni næstu vikna að sinna margvíslegum heilsufarsvanda þessa hóps en halda jafnframt áfram að minnka líkur á smitdreifingu með sóttkví, einangrun og smitrakningu.“

Í kvöldfréttum RÚV í gær sagði Runólfur Pálsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, að líkanið gefi tilefni til þess að sóttvarnaaðgerðir í samfélaginu verði tempraðar, „án þess þó að missa þetta úr höndunum á okkur.“

mbl.is