Skoða þurfi „sérstakan faraldur meðal barna“

Kórónuveiran Covid-19 | 20. janúar 2022

Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, segir mögulega tilefni til þess að skoða betur það sem hann kallar „sérstakan faraldur meðal barna“. Hann telur mikinn fjölda kórónuveirusmita meðal grunnskólabarna koma á óvart og það geti ekki talist sem eðlilegt frávik.

Thor Aspelund.
Thor Aspelund. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, segir mögulega tilefni til þess að skoða betur það sem hann kallar „sérstakan faraldur meðal barna“. Hann telur mikinn fjölda kórónuveirusmita meðal grunnskólabarna koma á óvart og það geti ekki talist sem eðlilegt frávik.

Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, segir mögulega tilefni til þess að skoða betur það sem hann kallar „sérstakan faraldur meðal barna“. Hann telur mikinn fjölda kórónuveirusmita meðal grunnskólabarna koma á óvart og það geti ekki talist sem eðlilegt frávik.

Rúv greinir frá.

Thor segir faraldurinn nú drifinn áfram af smitum barna en um helmingur þeirra sem greinast jákvæðir á degi hverjum eru á grunnskólaaldri.

Um helmingur þeirra smita sem greinast á dag eru meðal …
Um helmingur þeirra smita sem greinast á dag eru meðal barna á grunnskólaaldri. mbl.is/Ari Páll

Hafa því margir velt vöngum yfir því hvort að skynsamlegt hafi verið að undanskilja skólahald þegar samkomutakmarkanir voru hertar í síðustu viku. Forsætisráðherra hefur sagt mikilvægt að halda uppi rútínu í lífi barna og að halda úti skólastarfsemi þar sem þetta sé tími í þeirra lífi sem kemur ekki aftur.

Thor segir aukningu í fjölda smita eftir helgi vera óvenju mikla en vill þó ekki fullyrða hvort um veldisvöxt sé að ræða en það taki nokkra daga að fá staðfestingu á slíkri breytingu. Ætti það að skýrast undir lok vikunnar hvort merki séu uppi um nýjan vöxt eða nýja bylgju ofan í yfirstandandi bylgju.

mbl.is