Norður-Kórea staðfestir eldflaugaskot

Norður-Kórea | 31. janúar 2022

Norður-Kórea staðfestir eldflaugaskot

Stjórnvöld í Norður-Kóreu staðfestu í morgun að Hwasong-12-flugskeyti hefði verið skotið frá landinu í gær áður en það lenti í Japanshafi. Hafa þarlend stjórnvöld ekki gert tilraun með jafnöflugt vopn í fimm ár.

Norður-Kórea staðfestir eldflaugaskot

Norður-Kórea | 31. janúar 2022

Mynd sem Norður-Kóreumenn deildu þegar flugskeytinu var skotið í gær.
Mynd sem Norður-Kóreumenn deildu þegar flugskeytinu var skotið í gær. AFP

Stjórnvöld í Norður-Kóreu staðfestu í morgun að Hwasong-12-flugskeyti hefði verið skotið frá landinu í gær áður en það lenti í Japanshafi. Hafa þarlend stjórnvöld ekki gert tilraun með jafnöflugt vopn í fimm ár.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu staðfestu í morgun að Hwasong-12-flugskeyti hefði verið skotið frá landinu í gær áður en það lenti í Japanshafi. Hafa þarlend stjórnvöld ekki gert tilraun með jafnöflugt vopn í fimm ár.

Um er að ræða sjöunda eldflaugaskotið í janúar en Norður-Kórea hefur aldrei skotið upp jafn mörgum flaugum í einum mánuði.

Jap­an, Suður-Kórea og Banda­rík­in hafa öll for­dæmt skotið og hefur forseti Suður-Kóreu, Moon Jae-in, sérstakar áhyggjur af auknum tilraunum nágranna sinna í norðri.

Norðurkóreski ríkisfjölmiðillinn segir í sinni umfjöllun að tilraun gærdagsins staðfesti nákvæmni og öryggi Hwasong-12-flugskeytisins.

Tíma­setn­ing­in þykir einnig vera merki­leg en til­raun­irn­ar koma rétt fyr­ir Vetr­arólymp­íu­leik­ana í Kína og fyr­ir for­seta­kosn­ing­arn­ar í Suður-Kór­eu í mars.

mbl.is