60% færri launþegar hjá galdþrota fyrirtækjum

Kórónukreppan | 4. febrúar 2022

Fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta fækkaði mikið á milli áranna 2020 og 2021. Þá var fjöldi launafólks hjá fyrirtækjum sem lýst voru gjaldþrota 1.254 talsins árið 2021. Þetta er sextíu prósent samdráttur frá árinu áður, þar sem fjöldinn var 3.158.

Gjaldþrot voru flest á meðal ferðaþjónustufyrirtækja árið 2020.
Gjaldþrot voru flest á meðal ferðaþjónustufyrirtækja árið 2020. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta fækkaði mikið á milli áranna 2020 og 2021. Þá var fjöldi launafólks hjá fyrirtækjum sem lýst voru gjaldþrota 1.254 talsins árið 2021. Þetta er sextíu prósent samdráttur frá árinu áður, þar sem fjöldinn var 3.158.

Fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta fækkaði mikið á milli áranna 2020 og 2021. Þá var fjöldi launafólks hjá fyrirtækjum sem lýst voru gjaldþrota 1.254 talsins árið 2021. Þetta er sextíu prósent samdráttur frá árinu áður, þar sem fjöldinn var 3.158.

Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota árið 2021 minni en árið 2020 í öllum atvinnugreinaflokkum.

Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar.

Af 951 fyrirtæki sem skráð var í fyrirtækjaskrá Skattsins, og tekið var til gjaldþrotaskipta á árinu 2021, voru 210 með virkni á fyrra ári, 44% færri en 2020 þegar þau voru 375.

Af þeim voru 61 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (44% fækkun á milli ára), 34 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (42% fækkun), 38 í einkennandi greinum ferðaþjónustu (60% fækkun) og 77 í öðrum atvinnugreinum (31% fækkun).

23 fyrirtæki í fyrirtækjaskrá Skattsins voru tekin til gjaldþrotaskipta í desember síðastliðnum. Af þeim voru 14 með virkni á síðasta ári, það er annað hvort með launafólk samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 39% fækkun frá desember 2020.

mbl.is