Þyngdi sig um 13 kíló fyrir hlutverk

Heilsurækt | 16. febrúar 2022

Þyngdi sig um 13 kíló fyrir hlutverk

Leikarinn Mark Wahlberg þurfti að þyngja sig um rúm 13 kíló fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Father Stu sem er væntanleg í kvikmyndahús á næstu vikum. Til þess að þyngja sig borðaði hann sjö þúsund hitaeiningar á dag í tvær vikur og svo ellefu þúsund hitaeiningar á dag í aðrar tvær vikur. 

Þyngdi sig um 13 kíló fyrir hlutverk

Heilsurækt | 16. febrúar 2022

Mark Wahlberg.
Mark Wahlberg. AFP

Leikarinn Mark Wahlberg þurfti að þyngja sig um rúm 13 kíló fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Father Stu sem er væntanleg í kvikmyndahús á næstu vikum. Til þess að þyngja sig borðaði hann sjö þúsund hitaeiningar á dag í tvær vikur og svo ellefu þúsund hitaeiningar á dag í aðrar tvær vikur. 

Leikarinn Mark Wahlberg þurfti að þyngja sig um rúm 13 kíló fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Father Stu sem er væntanleg í kvikmyndahús á næstu vikum. Til þess að þyngja sig borðaði hann sjö þúsund hitaeiningar á dag í tvær vikur og svo ellefu þúsund hitaeiningar á dag í aðrar tvær vikur. 

Wahlberg segir að það hafi ekki verið auðvelt að þyngja sig á svo skömmum tíma. „Ég myndi segja að það væri auðveldara að halda sér í formi en að koma sér í form. Ég þyngdist um 13 kíló, það var erfitt. Ég er ekkert að yngjast,“ sagði Wahlberg í ástralska morgunþættinum Kylie & Jackie O á dögunum spurður hvort það hafi verið auðveldara, að þyngja sig eða létta.

Þessi mynd sem Wahlberg birti í maí á síðasta ári …
Þessi mynd sem Wahlberg birti í maí á síðasta ári vakti mikla athygli. Þarna hafði hann þyngt sig um 9 kíló á nokkrum vikum. Samsett mynd

Father Stu fjallar um hnefaleikakappa sem ákveður að verða prestur og þurfti því ýmislegt að gerast hjá leikaranum á meðan tökum stóð.

Wahlberg hefur í gegnum árin verið þekktur fyrir það að eiga auðvelt með að breyta formi sínu fyrir hlutverk. Hann hefur bæði létt sig og grennt fyrir hlutverk og hefur það tekið sinn toll.

mbl.is