Sviðsmyndir í orkumálum

Loftslagsvá | 8. mars 2022

Sviðsmyndir í orkumálum

Umhverfis- og orkumálaráherra hefur boðað til fundar það sem að skýrsla um stöðu og áskoranir í orkumálum verður kynnt.

Sviðsmyndir í orkumálum

Loftslagsvá | 8. mars 2022

Greint verður frá stöðu og áskorunum í orkumálum á fundinum.
Greint verður frá stöðu og áskorunum í orkumálum á fundinum. Ljósmynd/mbl.is

Umhverfis- og orkumálaráherra hefur boðað til fundar það sem að skýrsla um stöðu og áskoranir í orkumálum verður kynnt.

Umhverfis- og orkumálaráherra hefur boðað til fundar það sem að skýrsla um stöðu og áskoranir í orkumálum verður kynnt.

Fundurinn fer fram í Hörpu og hefst klukkan 14 í dag. 

Í byrjun árs skipaði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þriggja manna starfshóp sem fékk það verkefni að vinna skýrslu um stöðu og áskoranir í orkumálunum með sérstakri vísan til markmiða og áherslna stjórnvalda í loftslagsmálum.

Verða niðurstöður hans kynntar á fundinum sem horfa má á í beinu streymi hér að neðan. 

Starfshópurinn var skipaður eftirfarandi aðilum:

  • Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur og formaður hópsins.
  • Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur.
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hjá Samtökum Iðnaðarins

Þau Erla Sigríður Gestsdóttir, sérfræðingur og Magnús Dige Baldursson, lögfræðingur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu störfuðu með starfshópnum.

Hópurinn hafði þá samráð við sérstakan samráðshóp ráðuneytisins og stofnana auk þess að á fjórða tug hagaðila lögðu starfshópnum lið við vinnu skýrslunnar.

mbl.is