Mál á hendur Inga fellt niður

Alþingiskosningar 2021 | 14. mars 2022

Mál á hendur Inga fellt niður

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál Inga Tryggvasonar, fyrrverandi formanns yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis, fyrir brot á kosningalögum.

Mál á hendur Inga fellt niður

Alþingiskosningar 2021 | 14. mars 2022

Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi.
Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi. Ljósmynd/Dómsmálaráðuneytið

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál Inga Tryggvasonar, fyrrverandi formanns yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis, fyrir brot á kosningalögum.

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál Inga Tryggvasonar, fyrrverandi formanns yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis, fyrir brot á kosningalögum.

Þetta staðfestir Ingi í samtali við mbl.is en RÚV greindi fyrst frá.  

Ingi segist vita til þess að einn til viðbótar í kosningastjórninni hafi fengið bréf frá lögreglunni af sama tilefni og búast við því að allir fimm í kjörstjórninni muni fá slíkt bréf. 

Inga Tryggva­syni, for­manni yfir­kjör­stjórn­ar, var gert að greiða 250.000 króna sekt vegna ógætilegrar meðferðar kjörseðla við alþingiskosningarnar síðasta haust.

Aðrir í kjörstjórn fengu 150.000 króna sekt á mann. 

„Ég átti svosem alltaf von á þessu. Ég vissi ekki til þess að ég hafi brotið neitt af mér,“ segir Ingi. Spurður hvort að einhvern tímann hafi komið til greina að greiða sektina segir Ingi: „Nei, aldrei nokkurn tímann“.



mbl.is