Gran Canaria er ekki bara fyrir gamlingja

Á ferðalagi | 15. mars 2022

Gran Canaria er ekki bara fyrir gamlingja

Berg­lind Hreiðars­dótt­ir, mat­ar- og æv­in­týra­blogg­ari á Gotte­rí og ger­sem­ar, flúði febrúarlægðirnar til Cran Canaria með fjölskyldunni. Berglind fór í fyrsta sinn til eyjunnar í nóvember. Eftir ferðina var hún staðaráðin að fara aftur með fjölskylduna með sér enda Gran Canaria nýja uppáhaldseyja Berglindar. 

Gran Canaria er ekki bara fyrir gamlingja

Á ferðalagi | 15. mars 2022

Berglind Hreiðarsdóttir fór með fjölskylduna til Gran Canaria í febrúar.
Berglind Hreiðarsdóttir fór með fjölskylduna til Gran Canaria í febrúar. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Berg­lind Hreiðars­dótt­ir, mat­ar- og æv­in­týra­blogg­ari á Gotte­rí og ger­sem­ar, flúði febrúarlægðirnar til Cran Canaria með fjölskyldunni. Berglind fór í fyrsta sinn til eyjunnar í nóvember. Eftir ferðina var hún staðaráðin að fara aftur með fjölskylduna með sér enda Gran Canaria nýja uppáhaldseyja Berglindar. 

Berg­lind Hreiðars­dótt­ir, mat­ar- og æv­in­týra­blogg­ari á Gotte­rí og ger­sem­ar, flúði febrúarlægðirnar til Cran Canaria með fjölskyldunni. Berglind fór í fyrsta sinn til eyjunnar í nóvember. Eftir ferðina var hún staðaráðin að fara aftur með fjölskylduna með sér enda Gran Canaria nýja uppáhaldseyja Berglindar. 

„Þið sem mig þekkið vitið að ég elska að ferðast og fara í ævintýri út um allt. Ég sit sjaldnast auðum höndum og slaka á í takmörkuðu magni þó svo ég sé nú alltaf að reyna að bæta úr því. Að fara erlendis í sólarfrí með stórfjölskylduna var því ein allsherjar skemmtun, í bland við slökun auðvitað inn á milli,“ skrifar Berglind. 

Gistingin

Berglind dvaldi á hótelinu HD Parque Cristóbal með fjölskyldu sinni og var ánægð með gistinguna en hótelið er ofarlega á ensku ströndinni. „Ég ætla að vera alveg hreinskilin og segja að ég er engin þriggja stjörnu kona svona almennt þegar kemur að hótelvali. Við Hemmi skoðuðum hins vegar þetta hótel í síðustu ferð og leist vel á svo ég ákvað að láta slag standa og prófa þetta þar sem þetta var á mjög góðu verði. Eftir dvölina dreg ég snarlega alla mína þriggja stjörnu fordóma tilbaka og gæti ekki hugsað mér að gista annars staðar en akkúrat þarna ef ég færi aftur með fjölskylduna. Skil reyndar bara alls ekki af hverju þetta er aðeins þriggja stjörnu hótel, en það er nú önnur saga,“ skrifar Berglind.

Hún segir hótelgarðinn vera ævintýri út af fyrir sig. Nóg var af afþreyingu, skipulögð dagskrá fyrir börnin og hreyfing fyrir fullorðna fólkið. „Ég skellti mér meira að segja í Pilates tíma, úti í sólinni á þessum fallega stað, ójá ég gæti sko alveg vanist því.“

Berglind var ánægð með hótelið þrátt fyrir að það hafi …
Berglind var ánægð með hótelið þrátt fyrir að það hafi verið þriggja stjörnu. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Afþreying

„Það er ótrúlega margt spennandi hægt að gera á Gran Canaria. Við vorum dugleg að leika okkur en listinn okkar er langt frá því að vera tæmandi. Þessi eyja hefur upp á ótal margt að bjóða fyrir fjölskyldur sem og einstaklinga/pör svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“

Dunes Maspalomas

„Sandöldurnar svokölluðu eru á milli ensku strandarinnar og Meloneras-svæðisins. Á báðum endum er klassísk strönd þar sem fólk er að leika sér í sjónum og slaka á en síðan taka sandöldurnar við þar á milli. Það er göngustígur sem liggur fyrir ofan þær og síðan ganga margir meðfram sjónum alla leið á milli svæða.

Við tókum „Beach bus“ frá hótelinu okkar niður að Faro-vitanum og ákváðum að skoða okkur um á Meloneras-svæðinu, sýna krökkunum Lopesan Costa Meloneras hótelið sem við vorum á í síðustu ferð, skoða aðeins í búðir, fara á uppáhalds Starbucks, kíkja á úlfaldana og ganga síðan yfir sandöldurnar yfir á ensku ströndina. Krökkunum fannst gaman að labba yfir en þetta er alveg smá spotti og ekki láta ykkur bregða ef þið gangið inn á nektarsvæði, þau eru þarna víða. Verðlaunin fyrir krakkana voru síðan að komast á McDonalds eftir labbið. Við tókum síðan leigubíl þaðan aftur upp á hótel því við vorum komin með nóg af göngu þennan daginn.“

Sandöldurnar.
Sandöldurnar. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Holiday World

„Við vorum svo heppin að nágrannar okkar og vinir voru á Gran Canaria á sama tíma og við svo við hittum þau í Holiday World-tívolíinu eitt kvöldið og nánast áttum svæðið því það voru svo fáir.

Þetta tívolí kom heldur betur á óvart, mjög snyrtilegt og flott og allir skemmtu sér konunglega. Þarna er einnig hægt að fara í keilu og leiktækjasal og síðan er nokkurs konar mathöll á efri hæðinni fyrir þá sem vilja snæða á staðnum.“

Skemmtigarðurinn Holiday World.
Skemmtigarðurinn Holiday World. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Palamitos Park

„Þessi dýragarður er uppi í fjöllunum fyrir ofan Maspalomas-svæðið. Við tókum þangað leigubíl og vorum komin við opnun. Það voru fuglasýningar og höfrungasýning í boði ásamt fullt af krúttlegum og flottum dýrum að skoða.

Elín Heiða fékk að fara ofan í með höfrungum í 30 mínútur í sérstöku prógrammi, fékk að fræðast um þessi fallegu dýr, læra nokkur trikk frá höfrungatemjurunum svo það var aldeilis upplifun fyrir eina 12 ára. Hulda Sif mín yngsta fékk síðan að sitja fyrir með höfrungi á mynd og stóð sig vel. Harpa Karin hefur prófað hvorutveggja áður svo hún fylgdist bara með systrum sínum í þetta skiptið.

Við keyptum 2 Parks ticket á síðunni þeirra sem var þá bæði í Palamitos Park og Aqualand á fínu verði.“

Fjölskyldan fór í dýragarð.
Fjölskyldan fór í dýragarð. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Puerto de Mogán og Puerto Rico

„Ég hef sagt það áður og segi það aftur, að Mogán strandbæinn verða allir sem koma til Gran Canaria að heimsækja. Þessi bær er svo fallegur og ströndin dásamleg. Við ætluðum að vera á bílaleigubíl en eftir Covid eru þeir orðnir dýrari (svo fáir í boði) en að ferðast um á leigubíl í ákveðnum tilfellum svo við völdum að fara með leigubíl þennan daginn.

Við tókum bíl frá hótelinu og út á strönd, eyddum þar deginum í sólbaði, mokuðum sandkastala og lékum okkur. Eldri börnin og pabbinn fóru á Jet Ski og Crazy UFO (uppblásinn sófi sem er dreginn á sjónum) og fannst það geggjað og síðan fórum við öll saman á tvo hjólabáta. Það er leiga niðri á ströndinni og við pöntuðum bara þegar við komum á staðinn og hún er opin alla daga frá 10:00-17:00.

Á ströndinni.
Á ströndinni. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Í götunni niðri við ströndina er ítalskur staður sem heitir La Cicala þar sem við fengum geggjaðar margaritu pizzur, pasta, lasagna og fleira í hádeginu. Þarna í kring eru samt mun fleiri veitingastaðir og verslanir svo það er úr nægu að velja. Ég held reyndar ég myndi næst vilja gista nokkrar nætur í þessum bæ til að prófa fleiri og fínni veitingastaði.

Í lok dags tókum við síðan síðustu „Boat-Taxi“ yfir til Puerto Rico sem er einnig fallegur strandbær aðeins nær Maspalomas svæðinu. Það var gaman að sjá alla smábæina og strendurnar frá sjónum og Puerto Rico er einnig æðislegur staður þó svo Mogán eigi vinninginn að okkar mati.

Við fengum okkur síðdegissnarl þar við ströndina í sólsetrinu og fórum síðan í Mogán Mall til að leyfa krökkunum aðeins að versla og skoða sig um.“

Aqualand

„Aqualand er rétt fyrir ofan hótelið á leiðinni upp í fjöllin (sama leið og til Palamitos Park en miklu styttra). Við skelltum okkur þangað daginn áður en við fórum heim og almáttugur hvað það var mikið fjör. Við vorum komin þegar það opnaði kl:10:00 og hefðum auðveldlega getað verið til lokunar. Við Hulda Sif leigðum okkur bekki á barnasvæðinu og vorum þar að „chilla“ á meðan restin hljóp um allt og lék sér. Við fengum okkur hádegismat í garðinum og vorum síðan komin aftur heim á hótel um kaffileytið til að njóta aðstöðunnar þar aðeins líka síðasta daginn.“

Go Kart

„Vinir okkar voru á leið í Go Kart síðasta kvöldið og auðvitað stukkum við á vagninn þrátt fyrir annasaman dag. Planið var að fara eitthvað fínt út að borða síðasta kvöldið en krakkarnir voru frekar til í að eyða tímanum í þetta svo maturinn fékk að fjúka fyrir fjöri. Yngstu börnin fóru á sérbraut fyrst og síðan fóru unglingar og fullorðnir saman í „race“. Hér voru á ferðinni keppnisökumenn, það var snúist í hringi, keyrt í gegnum veggi og brjálað fjör. Maðurinn sagði við mig þegar hópurinn var að keyra inn í hús eftir hringina, „Crazy family“ svo eitthvað hefur nú gengið á. Allir voru sammála um að þetta hefði verið góð skemmtun og við fjölskyldan rétt náðum á hlaðborðið á hótelinu okkar fyrir lokun og svo var farið inn á herbergi að pakka niður.“

Yndisleg vika að baki sem leið allt of hratt

„Við þurfum klárlega að koma aftur á eyjuna fögru til að skoða meira og prófa fleira skemmtilegt. Við vorum líka öll sammála um það að ein vika er heldur stutt fyrir stórfjölskyldu eins og okkur sem elskar að skoða og flækjast um. Mælum því með að stoppa lengur ef þið getið,“ skrifar Berglind. 

Berglind gefur þeim sem eru á leiðinni til Gran Canaria gott ráð í lokin varðandi leigubíla á eyjunni. „Leigubílar eru ódýrir á Gran Canaria svo við fórum nánast allt í slíkum. Hótelið hringdi á bíl og hann var yfirleitt kominn á næstu mínútum. Við lentum hins vegar í því að stundum var erfitt að fá bíl tilbaka (frá Palamitos Park, Gran Karting Club o.fl) svo ég mæli með að þið fáið símanúmer hjá leigubílstjórum sem ykkur líst vel á og hringið í þá beint þegar ykkur vantar bíl, helst með smá fyrirvara.“

Það var notalegt að fá sól í febrúar.
Það var notalegt að fá sól í febrúar. Ljósmynd/Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is