Sprenging í sölu á hettupeysum karla

Fatastíllinn | 29. mars 2022

Sprenging í sölu á hettupeysum karla

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson hefur góða tilfinningu fyrir hvað menn þurfa að eiga í fataskápnum sínum. Hann segir að fólk þurfi að koma sér upp góðum grunnfataskáp og setja hann saman þannig að þeir lendi ekki í vandræðum. 

Sprenging í sölu á hettupeysum karla

Fatastíllinn | 29. mars 2022

Conor McGregor er flottur í hettupeysu frá Ralph Lauren.
Conor McGregor er flottur í hettupeysu frá Ralph Lauren.

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson hefur góða tilfinningu fyrir hvað menn þurfa að eiga í fataskápnum sínum. Hann segir að fólk þurfi að koma sér upp góðum grunnfataskáp og setja hann saman þannig að þeir lendi ekki í vandræðum. 

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson hefur góða tilfinningu fyrir hvað menn þurfa að eiga í fataskápnum sínum. Hann segir að fólk þurfi að koma sér upp góðum grunnfataskáp og setja hann saman þannig að þeir lendi ekki í vandræðum. 

Margir kannast við það að vakna fyrir vinnu og eru í vandræðum með hverju skal klæðast. Róta í skápunum og tína saman eitthvað sem gæti gengið. Sama er algengt þegar menn þurfa að klæða sig fínt og eru að fara í boð eða eitthvað slíkt. Oft er valið úr misheppnuðum innkaupum og úr fötum sem eru annaðhvort farin úr tísku eða úr sér gengin,“ segir Vilhjálmur verslunarstjóri í Herragarðinum.

„Lykilatriði er að leita sér faglegrar aðstoðar og koma sér upp skipulögðum grunnfataskáp. Að sjálfsögðu eru þarfirnar mismunandi eftir hverjum og einum en margir karlmenn gleyma að það þarf að vanda valið hvort sem valin eru ný jakkaföt fyrir stóru tilefnin eða val á réttu gallabuxunum eða stuttermabol,“ segir hann.

Vilhjálmur segir að herratískan hafi breyst mikið og síðustu ár hefur Herragarðurinn aukið vöruúrval sem þýðir að þeir selja alls ekki bara jakkaföt og bindi.

„Áður var aðalsmerki herrafataverslana spariklæðnaður en úrval af vönduðum hversdagsfatnaði hefur aukist og jafnmikilvægt að eiga gallabuxur eða boli sem eru úr vönduðum efnum. Einnig hefur orðið sprenging í því að menn kaupi sér til dæmis vandaða hettupeysu,“ segir hann.

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson verslunarstjóri í Herragarðinum.
Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson verslunarstjóri í Herragarðinum. mbl.is/Árni Sæberg
Drake í hettupeysu.
Drake í hettupeysu.
Strigaskór frá Polo Sport frá Ralph Lauren.
Strigaskór frá Polo Sport frá Ralph Lauren.
Skyrturnar frá Stenström eru ákaflega vandaðar.
Skyrturnar frá Stenström eru ákaflega vandaðar.
Daniel Craig er flottur í tauinu.
Daniel Craig er flottur í tauinu.
Ljósar skyrtur fara vel við ljósar buxur.
Ljósar skyrtur fara vel við ljósar buxur.
Stakur jakki í dökkum lit fer vel í fataskápum karla.
Stakur jakki í dökkum lit fer vel í fataskápum karla.
mbl.is