Leyndarmálið á bak við fallegt hár ofurfyrirsætu

Hárið | 7. apríl 2022

Leyndarmálið á bak við fallegt hár ofurfyrirsætu

Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson er með fallegt og náttúrulegt hár. Hún hefur ekki alltaf verið með lifandi hár að eigin sögn. Hún notaði tæki á borð við sléttujárn, krullujárn og hárblásara í mörg ár og var með hárlengingar. Við það varð hárið ljótt en hún segir að nokkur ráð hafi hjálpað hárinu að jafna sig. 

Leyndarmálið á bak við fallegt hár ofurfyrirsætu

Hárið | 7. apríl 2022

Ellle Macpherson er með fallegt hár.
Ellle Macpherson er með fallegt hár. AFP/JULIEN DE ROSA

Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson er með fallegt og náttúrulegt hár. Hún hefur ekki alltaf verið með lifandi hár að eigin sögn. Hún notaði tæki á borð við sléttujárn, krullujárn og hárblásara í mörg ár og var með hárlengingar. Við það varð hárið ljótt en hún segir að nokkur ráð hafi hjálpað hárinu að jafna sig. 

Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson er með fallegt og náttúrulegt hár. Hún hefur ekki alltaf verið með lifandi hár að eigin sögn. Hún notaði tæki á borð við sléttujárn, krullujárn og hárblásara í mörg ár og var með hárlengingar. Við það varð hárið ljótt en hún segir að nokkur ráð hafi hjálpað hárinu að jafna sig. 

Vítamín

Fyrirsætan trúir því að það skiptir máli að taka inn réttu efnin og ekki endilega bara borða réttu næringuna. Macpherson greinir frá þessu á heimasíðu merkisins sem hún stofnaði og heitir Welleco. Það kemur kannski ekki á óvart en að Macpherson tekur bætiefni frá Welle co. 

Haltu þig frá sólinni

Það þarf ekki bara að vernda húðina frá sólinni. Það þarf líka að vernda hárið, sérstaklega ef það er litað eða í slæmu ásigkomulagi. Macpherson sem er frá Ástralíu elskar að vera úti í sólinni en passar að vera með hatt. „Ég nota stóran kúrekahatt til þess að vernda hárið mitt (og andlitið) frá sólinni þegar ég er á ströndinni,“ segir fyrirsætan. 

Þvær ekki hárið á hverjum degi

Það er ekki endilega gott að þvo hárið of oft. Macpherson þvær á sér hárið annað hvert kvöld eða á tveggja til þriggja daga fresti. Í stað þess að nota hárblásara greiðir hún hárið í hnút þegar það er blautt og býr þannig til náttúrulega liði.

Elle Macpherson er með náttúrulegt hár.
Elle Macpherson er með náttúrulegt hár. AFP/JULIEN DE ROSA

Náttúruleg fegurð

Macpherson hefur prófað marga hárstíla en segir að sinn litur fari sér alltaf best. „Ég hef farið í gegnum tímabil þar sem ég var mjög ljóshærð sem fór mér ekki mjög vel en mér fannst það frábært á þeim tíma,“ segir fyrirsætan. „Í dag er ég ánægðari með náttúrulegt útlit mitt. Ég er heppin að vera ekki með grá hár svo ég og hársnyrtirinn minn ákváðum að leyfa náttúrulega litnum mínu að skína í gegnum ræturnar. Ég elska það.“

Silkikoddaver

Það skiptir ekki bara máli að nota réttu sjampóið og næringuna. Fólk getur endað með hár í einni flækju ef það sefur ekki á rétta koddaverinu. Hún mælir með því að nota silkikoddaver. 

Elle Macpherson.
Elle Macpherson. AFP/JULIEN DE ROSA
mbl.is