Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur verið í Færeyjum frá því á mánudag ásamt vinnuhópi úr ráðuneytinu í þeim tilgangi að kynna sér fiskeldi Færeyinga. Á fundum hafa einnig verið ræddir möguleikar á samvinnu ríkjann á þessu sviði, að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins.

„Það hefur verið verið lærdómsríkt að fá innsýn í reynslu okkar góðu granna. […] Færeyingar hafa meðal annars unnið ötullega að því að auka gæði og sjálfbærni framleiddrar vöru þannig að færeysk útflutningsframleiðsla sé í hæsta gæðaflokki og skila þannig meiri verðmætum í þjóðarbúið. Með því að fjárfesta í rannsóknum í greininni hafa Færeyingar lagt grunn að gríðarlegum framförum,” er haft eftir Svandísi.
Í Færeyjum fundaði hún með Magnus Rasmussen, iðnaðarráðherra Færeyja, sem fer með málefni fiskeldis og Árna Skaale, sjávarútvegsráðherra landsins, ásamt því að heimsækja Havstovu, systurstofnun Hafrannsóknastofnunar, og Vørn, systurstofnun Fiaskistofu.