Býður öldruðum í fjórða skammt

Kórónuveiran Covid-19 | 20. apríl 2022

Býður öldruðum í fjórða skammt

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öldruðum, sérstaklega þeir sem hafa náð þeim merka áfanga að klára 80 ár á þessari jörð, verði boðinn fjórði skammturinn af bóluefni gegn Covid-19. 

Býður öldruðum í fjórða skammt

Kórónuveiran Covid-19 | 20. apríl 2022

Frá fyrstu bólusetningunni gegn Covid-19 á hjúkrunarheimili.
Frá fyrstu bólusetningunni gegn Covid-19 á hjúkrunarheimili. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öldruðum, sérstaklega þeir sem hafa náð þeim merka áfanga að klára 80 ár á þessari jörð, verði boðinn fjórði skammturinn af bóluefni gegn Covid-19. 

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öldruðum, sérstaklega þeir sem hafa náð þeim merka áfanga að klára 80 ár á þessari jörð, verði boðinn fjórði skammturinn af bóluefni gegn Covid-19. 

Mælir hann með þessu „vegna áframhaldandi COVID-19 faraldurs og nýtilkominnar reynslu erlendis frá af gagnsemi fjórða skammts fyrir aldraða, sérstaklega 80 ára og eldri, og þá sem einnig hafa sjúkdóma sem auka hættu á alvarlegum COVID-19 veikindum“.

Tilkynnir Þórólfur þetta á vefsíðu embættis landlæknis.

„Sama á við um íbúa hjúkrunarheimila, óháð aldri, en mælt er með að ávinningur sé veginn fyrir hvern íbúa eins og fyrr. Hjúkrunarheimili fá bóluefni í gegnum heilsugæsluna.“

Þórólfur mælir með því að fólkið fái bóluefni frá Pfizer eða Moderna (þá hálfan skammt) en læknar geta ráðlagt notkun bóluefnis frá Janssen eða Novovax (t.d. vegna ofnæmis) þar sem staðfest er að þau vekja örvunarsvar eftir bólusetningu með öðrum bóluefnum.

„Sóttvarnalæknir beinir þeim tilmælum til heilsugæslunnar að skilaboð um bólusetninguna verði send hverjum einstaklingi í þessum tilteknum hópum, auk almennari auglýsinga um hvenær bólusetningar fara fram á hverjum stað. Aðrir sem fengu þriðja skammt fyrir fjórum mánuðum eða fyrr mega fá fjórða skammtinn ef þeir óska eftir því, en ekki er mælt með því almennt.“

mbl.is