Tiltekin varúð enn nauðsynleg

Kórónuveiran Covid-19 | 25. apríl 2022

Tiltekin varúð enn nauðsynleg

Þrettán sjúklingar eru nú með Covid á Landspítala, þar af eru 8 í einangrun. Einn er á gjörgæslu en hann er ekki í öndunarvél.

Tiltekin varúð enn nauðsynleg

Kórónuveiran Covid-19 | 25. apríl 2022

Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Þrettán sjúklingar eru nú með Covid á Landspítala, þar af eru 8 í einangrun. Einn er á gjörgæslu en hann er ekki í öndunarvél.

Þrettán sjúklingar eru nú með Covid á Landspítala, þar af eru 8 í einangrun. Einn er á gjörgæslu en hann er ekki í öndunarvél.

„Það fækkar því jafnt og þétt í hópnum en ekki nægilega til að hægt sé að taka Covid-viðbúnað á smitsjúkdómadeild niður að svo komnu. Nýgengi í samfélaginu er ennþá nokkuð hátt (440 m.v. 22.4.22) og því nauðsynlegt að viðhafa tiltekna varúðar enn um sinn,“ segir í tilkynningu frá farsóttanefnd Landspítalans. 

Þar er ennfremur neðangreint tekið fram: 

  • Áfram verða skimaðir sjúklingar sem leggjast brátt inn og þá sem flytjast á hjúkrunarheimili skal skima út aprílmánuð en þá má hætta því.
  • Grímuskylda starfsmanna breytist í valkvæða grímunotkun frá og með 1. maí 2022. Þá er þeim sem svo kjósa frjálst að bera grímu við vinnu sína, annað hvort alfarið eða í sjúklingavinnu. Þeir sem eru með einkenni um öndunarfærasýkingu ættu að sjálfsögðu ekki að vera við störf nema einkenni séu mjög væg og á undanhaldi, en þeim er ráðlagt að bera grímu þar til einkenni eru horfin. Sömu tilmælum verður beint til heimsóknargesta.
  • Fyrirkomulag heimsókna verður óbreytt enn um sinn (einn gestur í einu á tilgreindum heimsóknartímum). Þetta er grunnviðmið en stjórnendur eru áfram hvattir til sveigjanleika varðandi undanþágur frá þessu.
  • Vaktþjónusta farsóttanefndar leggst niður frá og með deginum í dag. Áfram verður póstum til farsóttanefndar svarað á dagvinnutíma, virka daga.
mbl.is