Almannavarnastig fært niður á óvissustig

Kórónuveiran Covid-19 | 29. apríl 2022

Almannavarnastig vegna Covid fært niður á óvissustig

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa hættustig almannavarna vegna Covid-19 niður á óvissustig.  

Almannavarnastig vegna Covid fært niður á óvissustig

Kórónuveiran Covid-19 | 29. apríl 2022

„Ástæðan fyrir þessari afléttingu er sú, að staða Covid-19 á …
„Ástæðan fyrir þessari afléttingu er sú, að staða Covid-19 á Íslandi er nú góð.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa hættustig almannavarna vegna Covid-19 niður á óvissustig.  

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa hættustig almannavarna vegna Covid-19 niður á óvissustig.  

Óvissustig Almannavarna vegna Covid-19 var fyrst sett á 27. janúar 2020, síðan þá hefur almannavarnarstigið vegna Covid-19 verið  fimm sinnum á hættustigi og fjórum sinnum á neyðarstigi, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum. 

„Ástæðan fyrir þessari afléttingu er sú, að staða Covid-19 á Íslandi er nú góð. Daglega greinast nú tæplega eitt hundrað manns opinberlega með Covid-19 þó líklegt sé að fleiri séu að smitast. Einnig er álag á heilbrigðisstofnanir nú til mun minna en áður var en nú liggja níu sjúklingar inni á Landspítala vegna Covid-19 og þar af eru sex með virkt smit en enginn er á gjörgæsludeild.

Talið að aðeins helmingur jarðarbúa hafi smitast

Þessari góðu stöðu má þakka útbreiddu ónæmi í samfélaginu bæði vegna góðrar þátttöku landsmanna í bólusetningum og vegna útbreiddra smita. Á næstu dögum verða birtar niðurstöður úr rannsókn sóttvarnalæknis og Íslenskrar erfðagreiningar á mótefnamælingum landsmanna sem munu gefa góðar vísbendingar um hversu stór hluti þjóðarinnar hefur raunverulega smitast af Covid-19,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að þó að staða Covid-19 sé nú góð hér á landi þá sé sjúkdómurinn enn til staðar víðsvegar í heiminum en nú sé talið að einungis rúmlega helmingur jarðarbúa hafi smitast.

„Á meðan að svo er, þá þurfum við hér á Íslandi að vera á varðbergi gagnvart nýjum afbrigðum veirunnar og einnig þurfum við fylgjast vel með hversu lengi ónæmið sem við höfum nú náð gegn Covid-19 mun endast.“

mbl.is