7,6 milljarða hagnaður hjá Bakkafrost

Fiskeldi | 10. maí 2022

7,6 milljarða hagnaður hjá Bakkafrost

Færeyska laxeldisfyrirtækið Bakkafrost skilaði á fyrsta á ársfjórðungi 405 milljónum danskra króna hagnaði eftir skatt, jafnvirði 7,6 milljörðum íslenskra króna. Rekstrarniðurstaða eftir skatt á sama tímabili í fyrra nam 408 milljónum danskra króna, að því er fram kemur í umfjöllun Kringvarpi Færeyja.

7,6 milljarða hagnaður hjá Bakkafrost

Fiskeldi | 10. maí 2022

Sjókvíar Bakkafrosts í Kaldbaksfirði í Færeyjum. Fyrirtækið slátraði samanlagt 21.500 …
Sjókvíar Bakkafrosts í Kaldbaksfirði í Færeyjum. Fyrirtækið slátraði samanlagt 21.500 tonnum á fyrsta ársfjórðungi í Færeyjum og Skotlandi. Ljósmynd/Bakkafrost

Færeyska laxeldisfyrirtækið Bakkafrost skilaði á fyrsta á ársfjórðungi 405 milljónum danskra króna hagnaði eftir skatt, jafnvirði 7,6 milljörðum íslenskra króna. Rekstrarniðurstaða eftir skatt á sama tímabili í fyrra nam 408 milljónum danskra króna, að því er fram kemur í umfjöllun Kringvarpi Færeyja.

Færeyska laxeldisfyrirtækið Bakkafrost skilaði á fyrsta á ársfjórðungi 405 milljónum danskra króna hagnaði eftir skatt, jafnvirði 7,6 milljörðum íslenskra króna. Rekstrarniðurstaða eftir skatt á sama tímabili í fyrra nam 408 milljónum danskra króna, að því er fram kemur í umfjöllun Kringvarpi Færeyja.

Samstæða Bakkafrosts slátraði 17.500 tonnum af laxi úr kvíum í Færeyjum og 4.000 tonn í Skotlandi á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 og hefur lítið verið um laxalús á tímabilinu og fá tilfelli, að sögn Regins Jacobsen, forstjóra Bakkafrosts.

Hann segir verð hafa verið óvenju há og var meðalverð á laxi á ársfjórðungnum 47% hærra en á sama tímabili í fyrra. Regin segir verðhækkanir megi rekja til aukinnar eftirspurnar, en framboð hefur ekki aukist milli ára.

Áform eru um að koma framleiðslu Bakkafrosts í 100 þúsund tonn á ársgrundvelli í Færeyjum árið 2026. Eigi það að ganga eftir er nauðsynlegt að koma upp stærri og fleiri seiðaeldisstöðvum á landi, segir Regin sem bendir á að stækkun seiðaeldisins í Glyvradölum og Norðtoftum gangi samkvæmt áætlun.

mbl.is