Flugstjóri kallaður fyrr á vaktina vegna útkalls

Landhelgisgæslan | 11. maí 2022

Flugstjóri kallaður fyrr á vaktina vegna útkalls

Skipstjóri dragnótabáts hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 7.30 í morgun. Bátur hans, með sjö manns um borð, var þá aflvana og rak hratt í átt að landi.

Flugstjóri kallaður fyrr á vaktina vegna útkalls

Landhelgisgæslan | 11. maí 2022

Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar á flugi.
Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar á flugi. mbl.is/Árni Sæberg

Skipstjóri dragnótabáts hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 7.30 í morgun. Bátur hans, með sjö manns um borð, var þá aflvana og rak hratt í átt að landi.

Skipstjóri dragnótabáts hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 7.30 í morgun. Bátur hans, með sjö manns um borð, var þá aflvana og rak hratt í átt að landi.

Þyrlusveit Gæslunnar var kölluð út um leið, á hæsta forgangi, auk björgunarsveitarinnar á Rifi.

Vegna veikinda var þó enginn flugstjóri á bakvakt, eins og í gær. 

Var að búa sig undir flugtak

Á þessum tíma var þó skammt til vaktaskipta flugstjóra, sem áætluð voru klukkan átta árdegis. Var því gripið til þess ráðs að kalla þann út sem taka átti við þá, hálftíma fyrir formleg vaktaskipti.

Sá flugstjóri var svo að búa sig undir að taka á loft þegar skipstjórinn hafði aftur samband.

Þá voru liðnar tuttugu mínútur frá útkallinu, og honum tekist að ræsa vél bátsins að nýju.

„Hann rak því hratt að landi en náði að koma vélinni í gang áður en illa fór,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar, í samtali við mbl.is.

mbl.is