Bjóða fólki að hestar svari tölvupóstum þess

Ferðamenn á Íslandi | 19. maí 2022

Bjóða fólki að hestar svari tölvupóstum þess

Ný herferð Íslandsstofu fyrir miðar að því að gera upplifun ferðamanna af Íslandi sem besta með því að minnka áreiti af vinnunni í fríinu. Þetta ætlar Íslandsstofa að gera með því að fá hesta til þess að svara tölvupóstum sem ferðamenn fá á meðan þeir eru í fríi.

Bjóða fólki að hestar svari tölvupóstum þess

Ferðamenn á Íslandi | 19. maí 2022

Hestarnir nota sérhannað lyklaborð við iðjuna.
Hestarnir nota sérhannað lyklaborð við iðjuna. Ljósmynd/Íslandsstofa

Ný herferð Íslandsstofu fyrir miðar að því að gera upplifun ferðamanna af Íslandi sem besta með því að minnka áreiti af vinnunni í fríinu. Þetta ætlar Íslandsstofa að gera með því að fá hesta til þess að svara tölvupóstum sem ferðamenn fá á meðan þeir eru í fríi.

Ný herferð Íslandsstofu fyrir miðar að því að gera upplifun ferðamanna af Íslandi sem besta með því að minnka áreiti af vinnunni í fríinu. Þetta ætlar Íslandsstofa að gera með því að fá hesta til þess að svara tölvupóstum sem ferðamenn fá á meðan þeir eru í fríi.

„Þjónustan nefnist Úthestaðu póstinum þínum (e. Outhorse your email), og snýst um að bjóða fólki að útvista svörun tölvupósta til íslenskra hesta,“ segir í tilkynningu frá Íslandsstofu. 

Sjón er söguríkari og mæla blaðamenn mbl.is með því að fólk horfi á meðfylgjandi myndband til þess að skilja betur hvað herferðin gengur út á. 

55% skoða vinnupóstinn á meðan fríi stendur

Íslandsstofa lét framkvæma alþjóðlega könnun fyrir herferðina. 55% aðspurðra sögðust skoða vinnupóstinn sinni einu sinni eða oftar á dag á meðan þau eru í fríi. Þá sögðu tæp 60% svarenda að þeim þætti sem yfirmenn, samstarfsmenn og viðskiptavinir ætluðust til þess að fá svar frá þeim meðan á fríi stæði, og einungis 44% sögðust koma úthvíld til vinnu eftir frí.

„Í nýrri herferð fyrir áfangastaðinn Ísland er reynt að stemma stigu við þessari þróun og endurheimta sumarfríið sem raunverulegan griðartíma frá vinnu. Með aðstoð risavaxins lyklaborðs sem var sérsmíðað fyrir hófa hafa íslenskir hestar skrifað svör sem ferðamenn geta nýtt sér fyrir sjálfvirka svörun tölvupósta meðan á fríinu stendur til að undirstrika enn frekar að það er í fríi. Lyklaborðið er það fyrsta sinnar tegundar sem er sérsmíðað fyrir hesta.“

Ljósmynd/Íslandsstofa

Í tilkynningu Íslandsstofu er eftirfarandi haft eftir Sigríði Dögg Guðmundsdóttur, fagstjóra ferðaþjónustu. 

„Við þekkjum öll hvernig heimavinna á Covid-tímum hefur afmáð skýr skil á milli einkalífsins og vinnunnar. Við sjáum líka í könnunum að fólk þráir að fara í frí þar sem það getur komist í raunverulega pásu. Við viljum vekja athygli á því að fólk á rétt á að vera í fríi í fríinu sínu, og jafnframt koma á framfæri sterkum skilaboðum um hvað Ísland er einstakur áfangastaður með því að tala beint til þessa stóra hóps ferðamanna sem vill komast í raunverulegt frí.“

Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ísland saman í sókn fyrir áfangastaðinn Ísland. Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins. Herferðin er unnin í samstarfi við auglýsingastofurnar SS+K sem er hluti af M&C Saatchi keðjunni og íslensku auglýsingastofuna Peel. Leikstjórn var í höndum Reynis Lyngdals, Veigar Margeirsson samdi tónlist og Ólafur Darri Ólafsson sá um lestur. Svör við tölvupóstum skrifuðu hestarnir Hrímnir frá Hvammi, Hekla frá Þorkellshóli og Litla Stjarna frá Hvítárhóli.

mbl.is