Ný met slegin á síðasta ári

Loftslagsvá | 19. maí 2022

Ný met slegin á síðasta ári

Í skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) kemur fram að ný met voru slegin á síðasta ári ef horft er til lykilþátta loftslagsbreytinga, þ.e. magns gróðurhúsalofttegunda, hækkunar sjávarborðs, sjávarhita og sýrustigs sjávar.

Ný met slegin á síðasta ári

Loftslagsvá | 19. maí 2022

Börn að leik í gosbrunni í gær í hitabylgju í …
Börn að leik í gosbrunni í gær í hitabylgju í frönsku borginni Lyon. AFP

Í skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) kemur fram að ný met voru slegin á síðasta ári ef horft er til lykilþátta loftslagsbreytinga, þ.e. magns gróðurhúsalofttegunda, hækkunar sjávarborðs, sjávarhita og sýrustigs sjávar.

Í skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) kemur fram að ný met voru slegin á síðasta ári ef horft er til lykilþátta loftslagsbreytinga, þ.e. magns gróðurhúsalofttegunda, hækkunar sjávarborðs, sjávarhita og sýrustigs sjávar.

Í skýrslunni kemur fram að þetta sé enn eitt óhrekjanlegt merki þess að loftslagsbreytingar af mannavöldum leiði til hnattrænna breytinga á landi, í hafi og í andrúmslofti, sem hafi skaðleg og varanleg áhrif á sjálfbæra þróun og vistkerfi jarðar.

Einnig kemur fram í skýrslunni að síðustu sjö ár hafa verið þau heitustu á jörðinni frá því að mælingar hófust, að því er kemur fram á vefsíðu Veðurstofu Íslands.

„Við kynningu á skýrslunni, sem er leiðandi rit Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar ár hvert, hvatti António Guterres aðalritari Sameinuðu þjóðanna eindregið til þess að nýta þær lausnir „sem blasa við” til þess að umbreyta orkukerfum jarðar þannig að þau rati út úr þeirri „blindgötu” sem notkun jarðefnaeldsneytis er, segir á vefsíðunni.

mbl.is