Ný gögn sýna glöggt það ris sem á sér stað

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 23. maí 2022

Nýjar gervihnattamyndir hafa borist úr Sentinel-1-gervitunglinu en þær eru frá 27. apríl til 21. maí. Þar sést að landris hefur verið í kringum 40-45 mm eftir að nýjasta jarðskjálftahrinan hófst.

Nýjustu myndirnar sýna það ris sem hefur orðið frá 27. …
Nýjustu myndirnar sýna það ris sem hefur orðið frá 27. apríltil 21. maí. Kort/Veðurstofan, Vincent Drouin

Nýjar gervihnattamyndir hafa borist úr Sentinel-1-gervitunglinu en þær eru frá 27. apríl til 21. maí. Þar sést að landris hefur verið í kringum 40-45 mm eftir að nýjasta jarðskjálftahrinan hófst.

Nýjar gervihnattamyndir hafa borist úr Sentinel-1-gervitunglinu en þær eru frá 27. apríl til 21. maí. Þar sést að landris hefur verið í kringum 40-45 mm eftir að nýjasta jarðskjálftahrinan hófst.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Um 400 jarðskjálftar mældust með SIL, sjálfvirku staðsetningarkerfi Veðurstofunnar á liðnum sólarhring. 

Í dag kl. 07.15 mældist jarðskjálfti af stærð 3,5 um 3 km austnorðaustan við Þorbjörn. Hans varð vart á Reykjanesskaganum og á höfuðborgarsvæðinu. Í gærkvöldi, kl. 23.13, varð jarðskjálfti af stærðinni 3 á sömu slóðum, segir enn fremur.

Kort sem sýnir skjálftavirkni 6.-13. maí á svæðinu við Svartsengi. …
Kort sem sýnir skjálftavirkni 6.-13. maí á svæðinu við Svartsengi. Appelsínugulir þríhyrningar eru skjálftastöðvar, bláir eru GPS-mælistöðvar. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is