„Tekur sinn tíma að klára þetta“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 30. maí 2022

„Tekur sinn tíma að klára þetta“

„Þetta er eins og við var að búast,“ segir Ármann Höskuldsson, eld­fjalla­fræðing­ur og pró­fess­or við HÍ, um minna landris síðustu daga á svæðinu við Þorbjörn og Svartsengi á Suðurnesjum. 

„Tekur sinn tíma að klára þetta“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 30. maí 2022

Jarðhræringar við Þorbjörn gætu haldið áfram þótt landris hafi minnkað.
Jarðhræringar við Þorbjörn gætu haldið áfram þótt landris hafi minnkað. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er eins og við var að búast,“ segir Ármann Höskuldsson, eld­fjalla­fræðing­ur og pró­fess­or við HÍ, um minna landris síðustu daga á svæðinu við Þorbjörn og Svartsengi á Suðurnesjum. 

„Þetta er eins og við var að búast,“ segir Ármann Höskuldsson, eld­fjalla­fræðing­ur og pró­fess­or við HÍ, um minna landris síðustu daga á svæðinu við Þorbjörn og Svartsengi á Suðurnesjum. 

Hægt hef­ur á landrisi og af­lög­un við Þor­björn og Svartsengi und­an­farna daga, en stöðugt landris hafði mælst þar síðustu vik­ur og Þor­björn lyfst um allt að 60 milli­metra síðan í apríl.

Ármann segir að það gefi ekki til kynna að jarðhræringum á svæðinu sé lokið.

„Ég held að það sé eðlilegt í atburðarásinni, henni er ekkert lokið. Hún hófst fyrir tveimur árum og fór á skrið á síðasta ári og svo tekur sinn tíma að klára þetta,“ segir Ármann.

Hann segir að skjálftarnir gangi upp og niður í hrinum og það segi lítið til um virknina á svæðinu.

Ármann Höskuldsson, eld­fjalla­fræðing­ur og pró­fess­or við HÍ.
Ármann Höskuldsson, eld­fjalla­fræðing­ur og pró­fess­or við HÍ. mbl.is/Golli

Áður hefur komið fram að kvikusöfnun á sér stað einhvers staðar undir Reykjanesinu og hún veldur landrisinu. Á fimmtán til tutt­ugu kíló­metra dýpi und­ir Fagra­dals­fjalli er að eiga sér stað kviku­söfn­un og gas frá henni gæti verið að leita upp í átt­ina að Svartsengi. Þá er einnig mögu­legt að það sé hluti af kvik­unni, en ekki bara gasið, sem leiti upp und­ir Svartsengi og valdi þar landrisi.

„Við bíðum bara“

Ármann segir mestu lætin í Eldvörpunum á Reykjanesinu og þar sé þenslan mikil.

„Við bíðum bara, það er ekekrt annað að gera. Það þarf væntanlega einhver meiri þensla að eiga sér stað áður en eitthvað gerist,“ segir Ármann.

Bæjaryfirvöld í Grindavík funda í vikunni með al­manna­vörn­um, lög­reglu, jarðvís­inda­mönn­um og öðrum viðbragðsaðilum um mögu­leg­ar varn­ir við Grinda­vík og Svartsengi ef verður af eld­gosi rétt við bæinn.

Ármann segir mikilvægt að nýta tímann vel í að undirbúa áður en eitthvað gerist og því sé gott að stilla strengina og fara yfir viðbragðsáætlanir.

mbl.is