Stöðvi brottvísanir til Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands

Flóttafólk á Íslandi | 1. júní 2022

Stöðvi brottvísanir til Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að brottvísanir og endursendingar flóttafólks til Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands séu stöðvaðar.

Stöðvi brottvísanir til Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands

Flóttafólk á Íslandi | 1. júní 2022

Flutningsmenn tillögunnar telja yfir vafa hafið að aðstæður í Grikklandi, …
Flutningsmenn tillögunnar telja yfir vafa hafið að aðstæður í Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi gefi fullt tilefni til þess að stöðva allar brottvísanir og endursendingar flóttafólks þangað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að brottvísanir og endursendingar flóttafólks til Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands séu stöðvaðar.

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að brottvísanir og endursendingar flóttafólks til Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands séu stöðvaðar.

Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að tryggja að stofnanir sem undir ráðuneytið heyra sendi umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki til Grikklands, Ítalíu eða Ungverjalands, óháð því hvort viðkomandi hafi þegar hlotið þar alþjóðlega vernd eða ekki.

Í greinargerð með tillögunni segir meðal annars að markmið hennar sé að tryggja að stjórnvöld sendi umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki á svæði þar sem aðstæður eru óviðundandi og hætt er við að fólk verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Íslenska ríkið hefur áður metið aðstæður tiltekinna svæða til móttöku flóttafólks óviðunandi. Má þar nefna að árið 2010 hætti Útlendingastofnun að senda flóttafólk til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vegna þess að þarlend stjórnvöld gátu ekki staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um aðbúnað flóttafólks. Sambærileg ákvörðun var tekin varðandi Ungverjaland árið 2015,“ kemur enn fremur fram í greinargerðinni.

Þar eru enn frekar raktar slæmar aðstæður fólks sem hlotið hefur alþjóðlega vernd í Grikklandi, Ungverjalandi og Ítalíu.

Flutningsmenn tillögunnar telja yfir vafa hafið að aðstæður í Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi gefi fullt tilefni til þess að stöðva allar brottvísanir og endursendingar flóttafólks þangað.

mbl.is