Þingmenn breska Íhaldsflokksins felldu vantrauststillögu á hendur Boris Johnson forsætisráðherra rétt í þessu.

Graham Brady, formaður 1922-nefndar breska Íhaldsflokksins tilkynnti að tillagan hefði verið felld með 211 atkvæðum gegn 148.
BBC greinir frá því að 41,2% íhaldsmanna hafi greitt atkvæði gegn Johnson en ekki er hægt að kalla fram aðra atkvæðagreiðslu um vanhæfi hans innan Íhaldsflokksins.
Einfaldan meirihluta þurfti til þess að fella Johnson, eða 180 þingmenn. Því vantaði 32 atkvæði til þess að Johnson yrði vikið úr embætti.
Tillagan var sett fram af 54 þingmönnum Íhaldsflokksins í kjölfar hneykslismála í tengslum við veisluhöld í Downingstræti á meðan strangar sóttvarnareglur voru í gangi vegna kórónuveirunnar.
Theresa May, forveri Johnsons í embætti forsætisráðherra, stóð af sér vantrauststillögu í lok árs 2018.
133 kusu með tillögunni en hún sagði af sér sex mánuðum síðar. Tók þá Johnson við embættinu.