Leggur til að vörur frá Úkraínu verði tollfrjálsar

Úkraína | 13. júní 2022

Leggur til að vörur frá Úkraínu verði tollfrjálsar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til breytinga á tollalögum þess efnis að tollar á vörum sem fluttar eru inn á tollasvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu, verði tímabundið felldir niður. 

Leggur til að vörur frá Úkraínu verði tollfrjálsar

Úkraína | 13. júní 2022

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til breytinga á tollalögum þess efnis að tollar á vörum sem fluttar eru inn á tollasvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu, verði tímabundið felldir niður. 

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til breytinga á tollalögum þess efnis að tollar á vörum sem fluttar eru inn á tollasvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu, verði tímabundið felldir niður. 

Er lagt til að ákvæðið gildi til 31. maí 2023. 

Athygli vekur að málið var lagt fram í þinginu 9. júní og því tekið fyrir með afbrigðum, enda seint fram komið.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að í ljósi innrásar Rússa í Úkraínu hafi Úkraína farið þess á leit við ríki Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA-ríkin) að bæta tollfríðindi til handa Úkraínu umfram það sem kveðið er á um í fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Úkraínu.

„Þá hefur Úkraína einhliða fellt niður tolla á allar vörur inn á sitt yfirráðasvæði í þeim tilgangi að ýta undir viðskipti,“ segir í greinargerðinni. 

Þar segir að fyrirhuguð niðurfelling tolla muni fyrst og fremst ná til landbúnaðarafurða en enginn innflutningur var á landbúnaðarafurðum frá Úkraínu til landsins árið 2021.  

Verði frumvarp þetta að lögum gæti það leitt til þess að fluttar yrðu til Íslands landbúnaðarvörur frá Úkraínu í meira mæli en nú er, sem gæti haft neikvæð áhrif á verð og/eða framboð íslenskra landbúnaðarvara. Þar ber einkum að nefna mjólkurduft en mögulegt er að af slíkum innflutningi geti orðið. Ekki er talið líklegt að flutt verði inn kjúklingakjöt eða egg þar sem flutningsvegalengd er mikil. Af sömu ástæðum er ekki líklegt að fluttar yrðu inn unnar kjötvörur, þótt ekki sé hægt að útiloka slíkt,“ segir í greinargerðinni.

mbl.is