Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur greinst með Covid-19 í annað sinn á fimm mánuðum.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur greinst með Covid-19 í annað sinn á fimm mánuðum.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur greinst með Covid-19 í annað sinn á fimm mánuðum.
Frá þessu greinir Trudeau sjálfur á Twitter og segir líðan sína góða en hann sé í sjálfskipaðri einangrun.
„Ég hef greinst jákvæður fyrir Covid-19. Ég mun fylgja fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda og einangra mig. Mér líður ágætlega, en það er vegna þess að ég er bólusettur. Þannig að ef þú ert það ekki, nældu þér þá í bólusetningu – og ef þú getur, nældu þér í örvunarskammt. Verndum heilbrigðiskerfið, hvert annað og okkur sjálf,“ segir í tísti forsætisráðherrans.
Trudeau, sem fengið hefur þrjá skammta af bóluefni við Covid-19, greindist einnig með veiruna síðla í janúar.