Risakvíar á kvíabóli í Hringsdal

Fiskeldi | 22. júní 2022

Risakvíar á kvíabóli í Hringsdal

Arnarlax setti út í vor lax í nýjar kvíar sem eru mun stærri en þær kvíar sem hingað til hafa verið notaðar hér við land. Sjókvíarnar eru á kvíabóli fyrirtækisins sem kennt er við Hringsdal í Arnarfirði og eru 200 metrar í ummál.

Risakvíar á kvíabóli í Hringsdal

Fiskeldi | 22. júní 2022

160 m kví er fremst en hinar eru af stærri …
160 m kví er fremst en hinar eru af stærri gerðinni. Ljósmynd/Halldóra Kristjánsdóttir

Arnarlax setti út í vor lax í nýjar kvíar sem eru mun stærri en þær kvíar sem hingað til hafa verið notaðar hér við land. Sjókvíarnar eru á kvíabóli fyrirtækisins sem kennt er við Hringsdal í Arnarfirði og eru 200 metrar í ummál.

Arnarlax setti út í vor lax í nýjar kvíar sem eru mun stærri en þær kvíar sem hingað til hafa verið notaðar hér við land. Sjókvíarnar eru á kvíabóli fyrirtækisins sem kennt er við Hringsdal í Arnarfirði og eru 200 metrar í ummál.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Íslensku sjóeldisfyrirtækin hafa mest notað sjókvíar sem eru 160 metrar að ummáli. 200 metra kvíarnar rúma umtalsvert meira. Samkvæmt upplýsingum frá Birni Hembre, forstjóra Arnarlax, er mikilvægur kostur að stóru hringirnir eru stöðugri í sjó en þeir minni og verjist betur miklum öldugangi. Minni hreyfing verður í kvíunum og betri aðstæður fyrir laxinn. Aukið rými skapi möguleika á að hafa rýmra um fiskinn. Einnig sé að hægt að hafa fleiri fiska í hverri kví, án þess að nálgast hámarkið. Þá telur hann kost að með færri kvíum sé notað minna svæði í firðinum, fyrir hvert framleitt kíló af laxi.

Rúmmál hverrar 200 metra kvíar er um 70 þúsund rúmmetrar, um 20 þúsund rúmmetrum meira en í hefðbundnu 160 metra sjókvíunum. Til samanburðar má geta þess að stærstu eldistankar á landi rúma 3-5 þúsund rúmmetra.

mbl.is