Katrín nýr sveitarstjóri Norðurþings

Katrín nýr sveitarstjóri Norðurþings

Katrín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Norðurþings og hefur hún störf í byrjun ágúst. Alls sóttu 17 um stöðuna og fimm drógu umsókn sína til baka.

Katrín nýr sveitarstjóri Norðurþings

Sveitarstjórnarkosningar 2022 | 8. júlí 2022

Katrín Sigurjónsdóttir.
Katrín Sigurjónsdóttir. Ljósmynd/Vefur Norðurþings

Katrín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Norðurþings og hefur hún störf í byrjun ágúst. Alls sóttu 17 um stöðuna og fimm drógu umsókn sína til baka.

Katrín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Norðurþings og hefur hún störf í byrjun ágúst. Alls sóttu 17 um stöðuna og fimm drógu umsókn sína til baka.

Katrín, sem er fædd árið 1968, er fyrrverandi sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Sölku-fiskmiðlunar hf. auk þess að hafa verið kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Einnig hefur hún stundað nám í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri, að því er kemur fram í tilkynningu.

Ráðningarsamningur tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur á fundi byggðarráðs Norðurþings.

„Ég er þakklát sveitarstjórn fyrir það traust að ráða mig í starf sveitarstjóra Norðurþings. Mér finnst Norðurþing mjög spennandi sveitarfélag, víðfemt og þar er mikil náttúrufegurð. Hvað varðar atvinnumál og uppbyggingu sé ég mikil tækifæri víða í sveitarfélaginu og ég hef fylgst að hluta til með því sem er í gangi í gegnum fundargerðir og íbúafundi. Ég hlakka mikið til að vinna fyrir sveitarfélagið og fylgja eftir samþykktum og áætlunum sveitarstjórnar. Þá finnst mér spennandi að flytjast í Norðurþing og kynnast nýju samfélagi. Það verður gott að koma að loknu sumarfríi og takast á við ný og spennandi verkefni með samstarfsfólki, sveitarstjórn og íbúum Norðurþings." segir Katrín í tilkynningunni.

mbl.is