Mælir með að taka sér góðan tíma í ferðalagið

Ferðumst innanlands | 11. júlí 2022

Mælir með að taka sér góðan tíma í ferðalagið

Ef marka má Björk Júlíönu Jóelsdóttur er gott að gefa sér nokkra daga til að heimsækja Vesturlandið og skoða listasöfn og alla staðina sem gera mat úr héraði. 

Mælir með að taka sér góðan tíma í ferðalagið

Ferðumst innanlands | 11. júlí 2022

Björk Júlíana Jóelsdóttir verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.
Björk Júlíana Jóelsdóttir verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

Ef marka má Björk Júlíönu Jóelsdóttur er gott að gefa sér nokkra daga til að heimsækja Vesturlandið og skoða listasöfn og alla staðina sem gera mat úr héraði. 

Ef marka má Björk Júlíönu Jóelsdóttur er gott að gefa sér nokkra daga til að heimsækja Vesturlandið og skoða listasöfn og alla staðina sem gera mat úr héraði. 

Það er ýmislegt að sjá og gera á Vesturlandi. Maturinn hér er einnig einstakur því hann er ræktaður heima í héraði og er á boðstólum bæði á veitingahúsum og sveitamörkuðum,“ segir Björk Júlíana Jóelsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Hún bendir á að þar sem sjósókn er víða á Snæfellsnesi sé það staðurinn til að gæða sér á ljúffengu sjávarfangi.

„Ég mæli með fyrir alla að prófa matinn á veitingahúsum sem bjóða upp á matvæli beint úr Breiðafirðinum. Vesturland er einnig mikið landbúnaðarsvæði sem gefur vel af sér í sauðfjár- og kúabúskap. Það er svo gott að rækta grænmeti á þeim svæðum sem búa yfir miklum jarðhita eins og finna má í Borgarfirðinum en svo hafa Vestlendingar líka verið hugmyndaríkir og duglegir að nota hráefnið sem þeir hafa ræktað og gera úr því fallegt matarhandverk.“

Matarhátíð varð að farandmarkaði

Matarauður Vesturlands er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vesturlands sem varð til vegna allra þeirra möguleika sem landshlutinn býr yfir í mat og drykk.

„Einn angi af Matarauði Vesturlands er matarhátíð sem haldin var á Hvanneyri haustið 2019 þar sem smáframleiðendur fengu tækifæri til að kynna vörur sínar og keppa í Askinum, Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki. Hátíðin gekk svo vel að við skipulögðum svipaðan viðburð haustið 2021. Við þurftum því miður að fella hann niður vegna kórónuveirunnar en með allan þennan undirbúning að baki og mikinn áhuga brugðum við á það ráð, á síðustu stundu, að snúa vörn í sókn og snúa hátíðinni upp í farandmarkað heima í héraði,“ segir Björk og útskýrir hvernig þetta var útfært.

„Við leigðum bíl og fylltum hann af gómsætu matarhandverki og keyrðum með það um allt Vesturland. Þetta vakti mikla lukku hjá bæði heimamönnum og smáframleiðendum og bætti okkur upp vonbrigðin með frestun hátíðarinnar. Það má því segja að allir hafi fengið eitthvað fyrir sinn snúð í þessari ferð.“

Á heimasíðu Matarhátíðar má lesa um Matarbúr Vesturlands þar sem finna má hvar hægt er að kaupa vestlenskar matvörur allt árið um kring eða á sérstökum viðburðum.

„Á farandmarkaðnum síðast tóku þátt Mýranaut; Háafell – geitfjársetur með geitaafurðir; sauðfjárbúið Ytra-Hólmi; Olivia's Gourmet og Narfasel var með grænmeti svo eitthvað sé nefnt. Rjómabúið Erpsstaðir var með mjólkurafurðir og Hafkaup með fiskbíl. Ég held að það kæmi landsmönnum á óvart hversu mikil matarkista Vesturland er,“ segir Björk.

Krosshólaborg í Dölum.
Krosshólaborg í Dölum.

Hvert myndir þú fara í draumaferðalaginu þínu um Vesturland?

„Það eru náttúruperlur hér víða og afþreying af ýmsu tagi. Hér er menning mikil og sagan líka og sögustaðir svo merkilegir að ég myndi hafa ferðalagið langt og taka mér tíma til að skoða allt. Jafnvel skipta því niður í nokkur skipti. Það er ótrúlega erfitt að velja uppáhaldsáningastaðina því þeir eiga sér allir ákveðinn sjarma.

Til að nefna eitthvað þá er sem dæmi Þjóðgarðurinn alltaf í uppáhaldi en þangað myndi ég fara bæði vegna náttúrunnar en einnig vegna nærveru Snæfellsjökuls af því að hann býr yfir þessari mögnuðu orku sem margir finna sem heimsækja hann og umhverfið í kring. Strandlengjan á Snæfellsnesi er líka heillandi, fíni sandurinn í bland við stórbrotnar klettamyndanir. Það er magnað hvernig andstæðurnar mynda stórkostlegt landslag sem breytist sífellt eftir því sem lengra er farið. Það er skyldustopp á Kirkjufelli að mínu mati enda er það eitt frægasta fjall á landinu. Staðurinn er mikill segull á ferðamenn og fullkomið dæmi um Instagram-vænan áningarstað.

Í Borgarfirðinum eru mínir mestu uppáhaldsfossar á landinu og má þar nefna Hraunfossa og Barnafoss og auðvitað Deildartunguhver, sem er ekki bara fallegur áningarstaður heldur einnig vatnsmesti hver í allri Evrópu.

Ég mæli með að heimsækja þessa staði og auðvitað hraunhellana á Snæfellsnesi og í Borgarfirðinum og ísgöngin í Langjökli sem eru sannkölluð upplifun. Góð ganga upp að Glym í Botnsdal svíkur engan og kyrrðin, friðurinn og sögustaðirnir allir í Dölunum draga að. Svo má ekki gleyma þéttbýlisstöðunum sem allir hafa sinn sérstaka ljóma hver um sig,“ segir Björk.

Allir finna eitthvað að sínum smekk

Aðspurð um uppáhaldsveitingastaðinn sinn segir hún að þeir séu nokkrir.

„Ég á erfitt með að nefna einn stað sérstaklega en ég á uppáhaldsstaði á hverjum stað. Smekkur fólks er ólíkur og þori ég að lofa að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi á þessum stöðum. En ég mæli með fyrir fólk að muna að sjávarréttir einkenna Snæfellsnesið. Í Dölum, Hvalfirði og Borgarfirði eru landbúnaðarafurðirnar einstaklega góðar og svo má ekki gleyma Erpsstöðum í Dölunum þar sem framleitt er alls konar, meðal annars ís og ostar.“

Þegar Vesturland er heimsótt er gott að hafa í huga að sumt er betra að gera á vissum árstíma.

„Sem dæmi er mælt með því að fara á hestbak, í bátsferðir, fuglaskoðun og aðra utandyraafþreyingu að sumri til en Vesturland er aðgengilegt allan ársins hring þó veðrið geti alltaf sett sitt mark á ferðaáætlanir.

Við erum með alls konar söfn sem ég get mælt með fyrir alla. Enda gerðist landnámssagan mikið til á Vesturlandi.“

mbl.is