Stal senunni í myntugrænum jakkafötum

Fatastíllinn | 15. júlí 2022

Stal senunni í myntugrænum jakkafötum

Leikarinn Ryan Gosling þótti sérstaklega sumarlegur á frumsýningu myndarinnar The Gray Man. Hann var í myntugrænum jakkafötum sem þóttu skemmtileg og öðruvísi.

Stal senunni í myntugrænum jakkafötum

Fatastíllinn | 15. júlí 2022

Ryan Gosling á frumsýningunni.
Ryan Gosling á frumsýningunni. AFP

Leikarinn Ryan Gosling þótti sérstaklega sumarlegur á frumsýningu myndarinnar The Gray Man. Hann var í myntugrænum jakkafötum sem þóttu skemmtileg og öðruvísi.

Leikarinn Ryan Gosling þótti sérstaklega sumarlegur á frumsýningu myndarinnar The Gray Man. Hann var í myntugrænum jakkafötum sem þóttu skemmtileg og öðruvísi.

The Gray Man er ný kvikmynd úr smiðju Netflix-sjónvarpsveitunnar og er hún sögð dýrasta kvikmynd Netflix til þessa. 

Gosling sem er 41 árs segist leggja mikið á sig þegar hann er að búa sig undir kvikmynd. Hann fer í ræktina tvisvar á dag, á morgnana og á kvöldin og borðar hollan mat. Oftast verður fiskur, grænmeti, hrísgrjón og próteinhristingar fyrir valinu. 

„Vöðvarnir eru eins og gæludýr. Maður verður að hugsa um þá annars fara þeir.“

Gosling þótti afar sumarlegur.
Gosling þótti afar sumarlegur. AFP
Mótleikkona Gosling, Ana de Armas, var í flottum kjól frá …
Mótleikkona Gosling, Ana de Armas, var í flottum kjól frá Louis Vuitton. AFP
Alfre Woodard var í einföldum hvítum sumarkjól en gylltu sandalarnir …
Alfre Woodard var í einföldum hvítum sumarkjól en gylltu sandalarnir gerðu hann sparilegri. AFP
Breski leikarinn Rege-Jean Page þótti mjög stílhreinn og smart í …
Breski leikarinn Rege-Jean Page þótti mjög stílhreinn og smart í dökkbláum jakkafötum og strigaskóm. AFP
Billy Bob Thornton mætti líka á frumsýninguna en var ekki …
Billy Bob Thornton mætti líka á frumsýninguna en var ekki alveg jafn vel til hafður og hinir. AFP
Simone Ashley sem þekktust er fyrir leik sinn í þáttunum …
Simone Ashley sem þekktust er fyrir leik sinn í þáttunum Bridgerton vakti athygli í svörtum kjól. AFP
mbl.is