Ófeimin við sviðsljósið í New York

Kóngafólk í fjölmiðlum | 21. júlí 2022

Ófeimin við sviðsljósið í New York

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja af Sussex fóru út að borða með vinum á mánudagskvöldið í New York borg. Hjónin, sem vanalega forðast blaðaljósmyndara og sviðsljósið, brostu til ljósmyndara þegar þau gengu út af ítalska veitingastaðnum Locanda Verde á Manhattan. 

Ófeimin við sviðsljósið í New York

Kóngafólk í fjölmiðlum | 21. júlí 2022

Harry og Meghan í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna á mánudag.
Harry og Meghan í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna á mánudag. AFP

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja af Sussex fóru út að borða með vinum á mánudagskvöldið í New York borg. Hjónin, sem vanalega forðast blaðaljósmyndara og sviðsljósið, brostu til ljósmyndara þegar þau gengu út af ítalska veitingastaðnum Locanda Verde á Manhattan. 

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja af Sussex fóru út að borða með vinum á mánudagskvöldið í New York borg. Hjónin, sem vanalega forðast blaðaljósmyndara og sviðsljósið, brostu til ljósmyndara þegar þau gengu út af ítalska veitingastaðnum Locanda Verde á Manhattan. 

Fyrr um daginn höfðu þau verið í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í borginni þar sem Harry flutti ræðu í tilefni af Nelson Mandela deginum sem fagnað var vestanhafs hinn 18. júlí. 

Þar voru þau hjónin einnig mynduð í bak og fyrir en þetta var í fyrsta skipti sem hjónin sjást opinberlega síðan í byrjun júní á valdaafmæli drottningarinnar. 

Í hádeginu á mánudag snæddi Meghan einnig með bandaríska blaðamanninum Gloriu Steinem og náðust myndir af þeim ganga hönd í hönd. 

mbl.is