Hefja kornútflutning frá Úkraínu

Úkraína | 29. júlí 2022

Hefja kornútflutning frá Úkraínu

Hafist var handa í dag við að flytja korn um borð í tyrkneskt flutningaskip í suðurhluta Úkraínu. Er þetta fyrsta skipið sem flytur korn frá Úkraínu frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Hefja kornútflutning frá Úkraínu

Úkraína | 29. júlí 2022

Volodimír Selenskí heimsækir Tsjornómorsk-höfn í suðurhluta úkraínu.
Volodimír Selenskí heimsækir Tsjornómorsk-höfn í suðurhluta úkraínu. AFP

Hafist var handa í dag við að flytja korn um borð í tyrkneskt flutningaskip í suðurhluta Úkraínu. Er þetta fyrsta skipið sem flytur korn frá Úkraínu frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Hafist var handa í dag við að flytja korn um borð í tyrkneskt flutningaskip í suðurhluta Úkraínu. Er þetta fyrsta skipið sem flytur korn frá Úkraínu frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti höfnina í suðurhluta Úkraínu og hafði umsjón með lestun kornsins. Kornið verður síðan flutt til dreifingar.

Flutningsskipið Polarnet er tyrkneskt.
Flutningsskipið Polarnet er tyrkneskt. AFP

Til stendur að flytja milljónir tonna

„Verið er að flytja korn um borð í fyrsta skipið síðan stríðsátök hófust. Þetta er tyrkneskt flutningaskip,“ segir í tilkynningu frá forsetaembættinu. Til stendur að flytja milljónir tonna af úkraínsku korni sem hefur ekki komist til dreifingar sökum stríðsins frá landinu.

Rúss­land og Úkraína und­ir­rituðu fyrir viku tíma­móta­samn­ing við Sam­einuðu þjóðirn­ar og Tyrk­land um að hefja flutn­ing á korni á ný. Gæti þetta létt á alþjóðlegri mat­vælakreppu. Þó varð bakslag að loknum samningsviðræðum eftir að Rússar skutu eldflaugum á Ódessa-höfn í Úkraínu einum degi síðar. 

mbl.is