Loka á gas til Lettlands

Úkraína | 30. júlí 2022

Loka á gas til Lettlands

Rússneska orkufyrirtækið Gazprom hefur lokað á gas útflutning til Lettlands. 

Loka á gas til Lettlands

Úkraína | 30. júlí 2022

Orkurisinn hefur verið að draga markvisst úr útflutningi á gasi …
Orkurisinn hefur verið að draga markvisst úr útflutningi á gasi til Evrópu. AFP

Rússneska orkufyrirtækið Gazprom hefur lokað á gas útflutning til Lettlands. 

Rússneska orkufyrirtækið Gazprom hefur lokað á gas útflutning til Lettlands. 

Í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér á samfélagsmiðlinum Telegram, kom fram að ákvörðun þessi hefði verið tekin í kjölfar brotinna skilmála. 

Gazprom, sem er eitt stærsta orkufyrirtæki Rússa, hefur nú þegar dregið verulega úr útflutningi til Evrópu. Síðast á miðvikudaginn dróst útflutningurinn saman um tuttugu prósent. 

Þar áður hafði fyrirtækið dregið úr sölu á orku til Evrópu tvisvar í júní. 

Saka Gazprom um að mótmæla þvingunum

Evrópusambandið hefur sakað fyrirtækið um að hafa gripið til þessa aðgerða í mótmælaskyni vegna viðskiptaþvingana sem í gildi eru gegn Rússlandi. 

Gazprom hefur aftur á móti haldð því fram að þessi samdráttur í framboði til útflutnings sé vegna tæknilegra vandræða í vélarbúnaði. 

Í þessari viku kom Evrópusambandið sér saman um áætlun til þess að draga úr gasnotkun. 

mbl.is