„Ein besta belgíska vaffla sem ég hef smakkað“

Ferðumst innanlands | 31. júlí 2022

„Ein besta belgíska vaffla sem ég hef smakkað“

Haraldur Líndal Haraldsson, samfélagsmiðlastjóri CampEasy í Keflavík, ólst upp á Ísafirði en faðir hans, Haraldur Líndal, var bæjarstjóri þar um tíma. Hann hugsar alltaf hlýlega til Ísafjarðar og á sína uppáhaldsstaði þar. 

„Ein besta belgíska vaffla sem ég hef smakkað“

Ferðumst innanlands | 31. júlí 2022

Haraldur Líndal Haraldsson samfélagsmiðlastjóri CampEasy í Keflavík.
Haraldur Líndal Haraldsson samfélagsmiðlastjóri CampEasy í Keflavík.

Haraldur Líndal Haraldsson, samfélagsmiðlastjóri CampEasy í Keflavík, ólst upp á Ísafirði en faðir hans, Haraldur Líndal, var bæjarstjóri þar um tíma. Hann hugsar alltaf hlýlega til Ísafjarðar og á sína uppáhaldsstaði þar. 

Haraldur Líndal Haraldsson, samfélagsmiðlastjóri CampEasy í Keflavík, ólst upp á Ísafirði en faðir hans, Haraldur Líndal, var bæjarstjóri þar um tíma. Hann hugsar alltaf hlýlega til Ísafjarðar og á sína uppáhaldsstaði þar. 

Haraldur er fæddur í Reykjavík en bjó fyrsta árið sitt í Kópavogi áður en fjölskyldan fluttist til Ísafjarðar. Hann ólst upp á Vestfjörðum til ellefu ára aldurs. Frá þeim tíma á hann bara góðar minningar. Hann segir að það hafi verið erfitt að flytja aftur í bæinn því frelsið var mikið og hamingjustundurnir fyrir vestan fjölmargar.

„Ég hef síðan þá búið í Reykjavík fyrir utan nokkur ár í Keflavík og á Bifröst þar sem ég var við nám. Svo hef ég reynslu af því að búa í Skotlandi þar sem ég kláraði meistaranámið mitt á sínum tíma. En það jafnast fátt á við Ísafjörð það verð ég að segja.“

Vaffla í Simbahöllinni.
Vaffla í Simbahöllinni.

Simbahöllinni á Þingeyri kemur á óvart

„Frelsið var einstakt og ekki í líkingu við það að vera barn í Reykjavík. Á veturna vorum við á skíðum og égeyddi öllum frístundum uppi í fjallinu. Á sumrin þvældumst við um allan bæinn, niður í Neðstakaupstað, út á bryggjuna og inn í Tungudal,“ segir hann.

Skemmtilegustu ferðalögin sem voru farin á þessum tíma voru tjaldútilegurnar með fjölskyldunni um Vestfirði en hann fór líka í bátsferðir inn á Hesteyri og í Vigur.

Haraldur fer reglulega vestur.

„Í fyrra keyrðum við til Ísafjarðar og gistum þar í þrjá daga. Við tókum svo einn dag þar sem keyrt var að Dynjanda með stoppi á Hrafnseyri þar sem við skoðuðum safn Jóns Sigurðssonar. Það var magnað að upplifa Dynjanda og kraftinn sem þar er. Á leiðinni til baka var stoppað í Simbahöllinni á Þingeyri, þar sem ég fékk eina bestu belgísku vöfflu sem ég hef smakkað. Ég mæli hiklaust með að koma við á Þingeyri,“ segir Haraldur.

Þegar hann er beðinn um að mæla með fleiri hlutum fyrir vestan nefnir hann Tjöruhúsið.

„Ef þú vilt eiga góða og skemmtilega kvöldstund og borða góðan mat þá mæli ég með Tjöruhúsinu. Það toppar það ekkert sem og stemningin sem Hauki tekst að búa til þar.“

Þegar Haraldur ferðast er hann mikið með vinum sínum en einnig fjölskyldu.

„Við fjölskyldan förum alltaf tvisvar á ári í Svarthöfðann að veiða. Það er ógleymanlegar stundir sem verða til í þeirri ferð.“

Mælir með að ferðast um á Campervan

„Eftir að ég byrjaði að vinna hjá CampEasy uppgvötaði ég hvað það er geggjað að ferðast um á campervan. Það er ekkert vesen og hægt er að fara á marga astaði án þess að þurfa að tjalda og fara í gegnum allt umstangið sem fylgir því,“ segir Haraldur sem er mikill sælkeri og góður í að finna sniðugan mat að borða á ferðalögum.

Hvað finnst þér þá um sjoppumat?

„Hann er ágætur þegar maður er á hraðferð.“

Hvað gerir þú listatengt á ferðalögum?

„Ég hef gaman af því að skoða arkitektúr. Að ganga um og skoða gömul hús. Það er sérstaklega gaman að sjá hvað er búið að endurbyggja mikið af gömlu húsunum í gamla bænum og Neðstakaupstað.“

Hvað með sundlaugar og náttúrulaugar fyrir vestan?

„Við fórum nokkrum sinnum í Hellulaug við Flókalund, svo er það sundlaugin við Drangsnes. Ég get mælt með þeim heilshugar,“ segir hann.

Hvað hefurðu aldrei gert fyrir vestan?

„Ég hef aldrei farið á „Aldrei fór ég suður“-hátíðina. Sem er eiginlega skömm að segja frá en gott að mun að þá gerir maður bara eitthvað í því.“

Tjöruhúsið á Ísafirði er í uppáhaldi.
Tjöruhúsið á Ísafirði er í uppáhaldi.
mbl.is