Rússar segjast hafa orðið fyrir drónaárás

Úkraína | 31. júlí 2022

Rússar segjast hafa orðið fyrir drónaárás

Rússar segjast hafa orðið fyrir drónaárás af hendi Úkraínumanna sem særði sex á skipi rússneska flotans við Sevastópol á Krímskaga.

Rússar segjast hafa orðið fyrir drónaárás

Úkraína | 31. júlí 2022

Rússneskir sjóliða halda upp á hátíðardag sjóflotans.
Rússneskir sjóliða halda upp á hátíðardag sjóflotans. AFP

Rússar segjast hafa orðið fyrir drónaárás af hendi Úkraínumanna sem særði sex á skipi rússneska flotans við Sevastópol á Krímskaga.

Rússar segjast hafa orðið fyrir drónaárás af hendi Úkraínumanna sem særði sex á skipi rússneska flotans við Sevastópol á Krímskaga.

Fregnirnar bárust um sama leyti og yfirvöld í borginni Mýkólæv í suðurhluta Úkraínu greindu frá því að þeir höfðu orðið fyrir „öflugustu“ skotárás í stríðinu til þessa.

Blaðamenn AFP urðu vitni að mikilli sprengjuárás á bæinn Bakmút í austurhluta landsins eftir að Volodomír Selenskí, forseti landsins, fyrirskiptaði brottflutning íbúa Donetsk-héraðs.

Rússnesk yfirvöld sögðu að lítill sprengibúnað úr dróna, sem líklega hafi verið skotið á loft í nágrenninu, hafi lent á skipi flotans.

„Hrein ögrun“

Bæjarstjórinn á staðnum kenndi „úkraínskum þjóðernissinnum“ um árásina sem varð til þess að aflýsa þurfti árlegri hátíð rússneska flotans.

Talsmaður hersins í Ódessa í Úkraínu hefur þvertekið fyrir það að Úkraínumenn beri ábyrgð á árásinni og sagði hann hana „hreina ögrun“.

„Frelsun okkar frá hernámsliðinu á Krímskaga mun fara fram á annan og mun skilvirkari hátt,“ skrifaði talsmaðurinn Sergí Bratsjúk á samskiptamiðilinn Telegram.  

Rússneskir sjóliðar í Sevastópol.
Rússneskir sjóliðar í Sevastópol. AFP

Tveir óbreyttir borgarar látnir

Yfirvöld í borginni Mýkólæv sögðu fyrr í dag að að minnsta kosti tveir óbreyttir borgar væru látnir eftir sprengjuárásir Rússa.

„Mýkólæv varð fyrir stórri skotárás í dag, sennilega sú öflugasta til þessa,“ sagði Óleksandr Senkevítsj bæjarstjóri borgarinnar á Telegram.

Mýkólæv er sú borg sem stendur hvað næst suðurvígstöðvunum í Úkraínu þar sem hersveitir Kænugarðs leitast nú við að hefja stóra gagnsókn til að endurheimta landsvæði sem tapaðist í kjölfar innrásar Rússa.

mbl.is